|
Post by Helga Audunsdottir on Aug 17, 2005 17:28:27 GMT -5
Þekkið þið til DDV klúbbsins. Ég var að ganga í hann því það var eina leiðin til að fá manninn minn til að taka þátt í því að breyta mataræði. Við erum bæði yfirvigtafólk en hreyfum okkur missmikið. Ég var búin að reyna að halda mig við próteinríkt fæði og rokka á kaloríum en það var ekki að virka þar sem líkaminn sagði bara nei takk, eftir smá tíma. Nú á að taka alla familíuna í reynslu með að hafa helling af grænmeti á boðstólum en takmarkað magn að kjöti - fiski - kjúkling. Það er allt leyfilegt nema í takmörkuðu magni. Svo er að hreyfa sig með þessu.. sem ég geri en maðurinn minn elskar stólinn sinn.. og sófa en sem komið er en það er aldrei að vita hvað gerist þegar hann léttist, maður verður að vera bjartsýn
|
|
|
Post by badda on Oct 29, 2006 3:18:02 GMT -5
Hvernig gengur Helga með DDV - þekki nokkrar stelpur sem hafa verið á þessu og flestar gefist upp, svo sem eins og með mataræðið sem þú fylgdir. Fæstir virðast ná að halda þessu en þeir sem ná því sýna árangur - alveg greinilega. Mér finnst prívat og persónulega svolítið mikið um sætuefni í DDV og þau eru nú umdeild. Best væri að maður næði að halda hreint mataræði, ERFITT - ég veit. Er stöðugt að reyna. Nú ætla ég að byrja á hreinsunarkúrnum hennar Gunnsu - sjáum hvernig það fer
|
|