|
Post by eythora on Mar 14, 2006 17:16:20 GMT -5
Stelpur eigið þið einhver ráð með svona hreinsikúr fyrir líkamann? Finnst ég þurfa á því að halda núna en ég veit ekki alveg leiðina að því.
Frábært ef þið gætuð hjálpað mér, ég er samt ekki að leita að vatnsdrykkju í þrjá daga samfellt og enginn matur. Ég myndi nú bara deyja þannig enda æfi ég helling og veit ekki alveg hvernig það myndi ganga upp.
Bestu kveðjur E
|
|
|
Post by gunnsa on Jul 28, 2006 16:39:44 GMT -5
hæhæ ég á mjög gott hreinsunarprógramm sem Unnar Karlsson lét mig hafa. Skelli því hérna inn þegar emailið mitt er komið í gagnið aftur, það er eitthvað verið að gera við skólavefsíðuna:) Kær kveðja, Gunnhildur
|
|
|
Post by eythora on Aug 10, 2006 9:22:42 GMT -5
Hjartans þakkir fyrir það Gunnhildur. Emailið mitt er eythora@hotmail.com ef þú mannst eftir :-) Hvernig gengur annars undirbúningurinn hjá þér fyrir fitness? Ætlarðu ekki að keppa í haust?
|
|
|
Post by Anna Bella on Aug 15, 2006 13:32:17 GMT -5
Sæl Eyþóra, Ef að Gunnhildur er í vandræðum með hreinsunarprógrammið.... þá get ég sent þér það vegna þess að þessi elska hefur einhverntiman sent mér prógrammið.... þarf bara að finna það Og já ......... hvernig er það með þig Gunnsa mín? er ekki mót hjá þér í haust? hvort ætlaru í bikarmót IFBB eða Icefitness? hvenær er það annars? kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by gunnsa on Aug 16, 2006 5:56:39 GMT -5
Hæ elskurnar. Hér er prógrammið
Dagur 1-3: Allir ávextir (nema þurkaðir ávextir og bananar) Allt grænmeti (ekki kartöflur og rófur) 2 Myoplex Diet (daglega) Mikið af vatni með sírtónu og lime Fjölvítamín og steinefni
Dagur 4-6: Epli 3-5 stk á dag Pressaðir ávaxtasafar (þú þarft safapressu í þessa daga – kosta uþb. 13 þús í Elkó) Allt grænmeti (ekki kartöflur og rófur) Mikið af vatni með sítrónu og lime – Bættu 2 tsk af Spirulina dufti út í hvert glas Fjölvítamín og steinefni
Dagur 7-8: Epli 3 stk á dag Allt grænmeti (eins mikið og þú villt – ekki kartöflur og rófur) Mikið af vatni með sítrónu og lime – 2 tsk af Spirulina dufti í hvert glas Fjölvítamín og steinefni
Dagur 9: Vatn með sítrónu, lime og Spirulina – Eitt glas á 60-120 mínútna fresti Fjölvítamín og steinefni
Dagur 10: Allt grænmeti Allir ávextir Grænmetis súpur og seiði Fjölvítamín og steinefni
Dagur 11: 2 Myoplex Allt grænmeti Allir ávextir Hafragrautur Fjölvítamín og steinefni
Dagur 12: Hérna er kúrnum lokið og þitt venjulega mataræði tekur aftur við.
Flott á því, ha:) Já ég er að spá í að taka bikarmót IFBB í haust. Þá fæ ég reynsluna og þetta yrði megastuð. En Anna, hvar fær maður svona búninga og hvað eiga þeir til að kosta? Er hægt að panta þá á netinu?
|
|
|
Post by Anna Bella on Aug 16, 2006 17:05:47 GMT -5
Hæ elskan, Búningarnir kosta allt frá 40 þús parið og uppúr .... það fer allt eftir hvað þú ert að leita að ... hvað þú sættir þig við ;-) Búningarnir sem ég nota á HM í haust eru yfir 100þús saman....en það er hægt að fara alveg uppí 150 þús fyrir stk !!!!! þannig að eins og þú sérð það fer allt eftir þvi hvað þú vilt að sé lagt uppúr keppnisfötunum... svo er ein Kona hér á Íslandi sem hefur saumað á keppendur... hún heitir Freydis. En hvaða mót ætlaru að keppa á? Ice fitness eða IFBB? það skiptir td máli uppá val á búning. Persónulega myndi ég ekki fara í mjög dýrt fyrr en þú ert a) viss um að þú viljir leggja fitness fyrir þér og B) ert búin að keppa amk nokkrum sinnum.... ég hefði ekki keypt svona dýrt nema af þvi að þetta er HM. En með þetta get ég hjálpað þér lika elskan.... ekkert mál kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by gunnsa on Aug 16, 2006 20:29:18 GMT -5
Hæ sæta og takk yndislega vel fyrir fljót svör:) Ég ætla ætla ætla að leggja fyrir mig að keppa:) ég fær svo oft flugur í hausinn og væri löngu hætt við ef þetta væri svoleiðis, en mig hefur dreymt um þetta og ég hef stefnt að þessu síðan í undirbúningi fyrir ungfrú suðurland þegar ég keppti í því. Heillaðist uppúr skónum af líkamsrækt, fitnessi (fór í leiðinni að kynna mér það sport) og öllu sem við því kemur. Ég keppi annaðhvort í haust eða næsta vor, í fyrsta skipti. Ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að keppa í haust en þar sem að aðgerð og mikil veikindi í vor settu strik í reikninginn með vöðvauppbyggingu ætla ég að sjá til hvort ég verð komin í nóg fantaform til þess að keppa í haust. Plús fjárhagur. Þessvegna myndi ég fara frekar ódýrt í búninginn. Það væri hinsvegar sniðugt að fara núna í haust upp á þessa mikilvægu reynslu og svo var það ein vitur manneskja (hehe) sem sagði mér að líkaminn tæki best við sér eftir mót;) Svo ætti ég líka búninginn fyrir mótið næsta vor. Og miðað við árangurinn hingað til á ég alveg að ná þessu. Þrái þetta ótrúlega mikið. Svo veit ég ekkert hvort ég yrði eitthvað betur stödd sem byrjandi næsta vor eða byrjandi núna? Pælum í því. Með hina leiðina, að fara frekar í vor, þýðir það að ég hef mun meiri tíma til að byggja ennþá betur upp vöðvana og ná betra þoli áður en ég færi í niðurskurðinn um það bil í janúar. En segjum að ég skelli mér í haust, hvort mælirðu meira með Ice fitness eða bikarmóti IFBB fyrir byrjendur í fitness? Hvort er erfiðara? Og það væri yndislegt að geta fengið hjálp frá þér með niðurskurðinn, ég yrði ævinlega þakklát fyrir það og það er ómetanlegt að fá þennan stuðning. gunnsa87.bloggar.is/album/11853/Það eru myndir þarna teknar í júlí...aðeins til að sýna árangurinn á vöðvastækkun, grenningu og svoleiðis;) tíhí. heyri í þér, og væri til í að hitta þig einhverntíma í haust svo þú gætir skoðað mig og gefið mér hreinskilið álit á því hvort ég eigi séns í haustið elskan mín. Kær kveðja, Gunnhildur
|
|
|
Post by eythora on Aug 22, 2006 8:07:16 GMT -5
Ástarþakkir Gunnhildur. :-)
kv E
|
|