|
Post by Helga Audunsdottir on May 28, 2005 10:09:29 GMT -5
Hjón ein áttu í erfiðleikum heima fyrir og voru með hvort annað í þagnarmeðferð. <br> Allt í einu fattar maðurinn það að hann þarf á konunni sinni að halda til þess að vekja hann kl. 5 morguninn eftir til þess að ná flugi á mikilvægan viðskiptafund.
Þar sem hann vildi ekki vera fyrstur til þess að rjúfa þögnina (og þar með tapa rifrildinu), skrifaði hann á blað. <br> Viltu vekja mig klukkan 5 í fyrramálið, og skildi blaðið eftir þar sem hann vissi að hún myndi finna það.<br> Næsta morgun vaknar maðurinn og sér að klukkan er orðin 9 og hann er búinn að missa af fluginu. Hann fer bálreiður fram úr og ætlar að athuga af hverju konan hans vakti hann ekki, en tekur þá eftir blaði við rúmið.<br>
á blaðinu stóð, Klukkan er 5 ? Vaknaðu!! ;D
|
|