|
Post by kolla on Aug 28, 2005 6:11:55 GMT -5
;D vildi bara forvitnast hvernig væri að ganga þér Anna. Ekkert að gera á þessari síðu..hmm við þurfum að fara að rífa hana aðeins meira upp er það ekki??? ;D
|
|
|
Post by sibba on Aug 28, 2005 16:02:52 GMT -5
Já nú er sumarið liðið og allir ættu nú að fara að koma sér í gírinn og taka vel á því já en hvað ætli sé að frétta af Önnu Bellu?? engin dagbók ekki neitt já og eru þið ennþá að hittast á laugardögum eða tóku sér allir frí í sumar?? væri gaman að fá að heyra í ykkur Ég sjálf var ekki að lyfta í sumar (bara að spila golf) en ætla að byrja á morgun að lyfta og koma mér í form ekki veitir af eftir sumarið !! vona að ég heyri í ykkur þetta gengur ekki svona kveðja Sibba
|
|
|
Post by eythora on Aug 28, 2005 16:06:06 GMT -5
Já nú skulum við rífa upp stemninguna stelpur.
Ég var dugleg fram að sumarfríi en þá tóku við göngur og sund. Er byrjuð aftur að lyfta en samt ekki af sama krafti og fyrr. Kemst í þann gír svona um miðjan september. Er enn í því að labba upp um fjöll og firnindi. Það er svo gaman.
Kær kveðja Eyþóra
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Aug 29, 2005 9:56:39 GMT -5
Já hún er eitthvað dauf við að skrifa, en ég veit henni gengur vel. Svakalegur dugnaður er þetta að vera á fjallarambi fram haust En ég veit að það er eitthvað það yndislegasta sem hægt er að gera að komast í burtu frá erlinum og fara á fjöll í friðinn og kyrrðina. En ég er sammála við verðum að fara drífa upp spjallið hér, enda gefur það manni spark í rassinn að heyra ykkur kv Helga
|
|
|
Post by anna on Aug 31, 2005 12:55:05 GMT -5
Því er ekki að neita að maður saknar þess að sjá engar línur frá henni. Væntanlega nóg að gera og mikið álag núna þegar innan við mánuður til stefnu. Vonandi gengur þér vel.
Ég er til í að vera með í að rífa upp stemmninguna. Var nokkuð mikið stöðug í gyminu í sumar. Mætti reglulega og tók vel á. Hins vegar allt frekar staðnað hjá mér og því ákvað ég að fara í einkaþjálfun og ég er byrjuð í henni og vonandi fer ég að sjá meiri árangur. Vil minnka fitu% um 12% þannig að af nógu er að taka :-)
kv. Anna
|
|
|
Post by sibba on Aug 31, 2005 16:42:20 GMT -5
Anna gangi þér vel með fitu% 'Eg vill lækkaða fitu% og sterkari vöðva ;D var að byrja í gær. lyfti í gær og brennsla í dag oog vá harsperrurnar gangi þér vel Anna Bella já Eyþóra það er gaman að ganga úti verst hvað veðrið hefur verið leiðinlegt jæja kveðja Sibba
|
|
|
Post by Anna Bella on Sept 1, 2005 8:49:40 GMT -5
Þetta nottlega gengur ekki hjá mér!!!!
Ég biðst INNILEGA afsökunar að hafa ekkert látið í mér heyra! En satt er það að ég er að drukkna í verkefnum! Er að hætta að einkaþjálfa og er að vinna að þvi sem koma skal hjá mér eftir það ( Nóg af rannsóknarvinnu þar) + að reyna að koma mér í form fyrir HM. Það gengur mjög erfiðlega að komast í gegnum þennann undirbúning þar sem ég hef eiginlega ekki tima og þegar maður er í timaþröng .... þá nennir maður ekki! og það er ekki nógu gott... EN ég vissi greinilega hvað ég var að gera þegar ég gekkað eiga Alfreð og hann er eins og klettur og tók það hjá sér að drifa sig á fætur með mér korter fyrir fimm á morgnanna til þess eins að ég drifi mig lika og fari að æfa!!!! án hans myndi ég lúlla áfram og sennilega hætta við öllu saman. aðeins 23 dagar til stefnu og nóg vinna eftir í köttinu.
jæja elskurnar mínar .. það gleður mig að sjá að þið eruð allar að koma aftur og vona ég að það verði líflegra hérna... var frekar einmanna hérna á timabili
kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Sept 1, 2005 14:57:12 GMT -5
sko hún er að vakna af sumarsvefninum, vildi óska að ég gæti druslaðst með þér kl. 5 það er allra besti tíminn til að brenna xoxoxooxxoo
|
|
|
Post by sibba on Sept 1, 2005 15:08:30 GMT -5
já það var frekar dautt í sumar samt kíkti ég alltaf hérna inn við og við Anna Bella Gangi þér vel að ná takmarkinu ;)gott að hafa einhvern sem rífur mann áfram :)og velkomin aftur á spjallið bið að heilsa ykkur Sibba
|
|
|
Post by kolla on Sept 2, 2005 16:06:46 GMT -5
Velkomin snúlla aftur og þið allar hinar líka ;D En Anna ertu að hætta alveg að þjálfa... ertu að fara að vinna við eitthvað annað...hmmmm en jújú maður æfði víst nóg í sumar en maturinn og allt grillið fór líka vel ofan í mallakútinn minn en það lagast núna í vetur. Skólinn byrjaður og öll rútínan aftur sem er bara gott .. en jæja gangi ykkur vel allar saman ;D
|
|