|
Post by Anna Bella on Sept 5, 2005 5:13:58 GMT -5
Staðan er þannig hjá mér í dag að Vegna meiðsla er ég að draga mig í hlé frá HM! En þó ekki eingöngu... Ég hreinlega þarf hvíld!! Ég er ekki að ná þessu hvort sem það er andlega eða líkamlega. Til þess að vera bestur í þessu sporti eða bara góður! Þá þarf hungrið að vera til staðar... án hungurs getur maður ekki farið á fætur kl 4:30 á hverjum degi til að brenna! án hungurs er matarræðið ekki eins og það á að vera, án hungurs leggur maður sig ekki 100% fram og fer að gera allskonar mistök og vitleysir sem maður myndi kannski aldrei gera annars. Ég hef alltof mikla sjálfsvirðingu til að geta farið á HM eða annað mót í formi sem ég er ekki sátt við! Þannig að............. þvi miður gott fólk! En eg mun nota timan vel til að gera mig ósigrandi á næsta móti sem ég tek þátt í... hvaða mót sem það verður Þakka ykkur enn og aftur fyrir stuðninginn Kær kveðja Ykkar vinkona Anna Bella
|
|
|
Post by Anna Bella on Sept 5, 2005 8:35:24 GMT -5
Ég vil nú samt bæta við að ykkur er fullkomlega óhætt að leita ráða til mín og mun ég af fremsta megni reyna að aðstoða ykkur! Bara svona.............. svo það sé alveg á hreinu sko!!!!
Kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Sept 5, 2005 12:11:10 GMT -5
Sko, þetta er ekki hægt sko sko, maður bara klæðir sig í spelkur og heldur áfram.. nei elsku stelpan mín, ég veit þú ert að gera rétt í þessu það er búið að vera endalaus merki hjá þér um að sleppa þessu móti. Og ég held að það sé rétt, ef við tökum ekki mark á því sem er að gerast í kringum okkur og líkaminn reynir að segja okkur, þá stoppar hann okkur eins og þú ert að sjá núna. Elska þig stelpa, við munum vera hér áfram. kv, Helga
|
|
|
Post by eythora on Sept 7, 2005 17:05:14 GMT -5
Mikið rosalega er ég stolt af þér Anna Bella. Þrátt fyrir að ég þekki þig ekki neitt þá finnst mér þú skara fram úr öðru fólki, einkum í þessum geira.
Mér finnst þú koma fram af heilindum, vera samkvæm sjálfri þér og einmitt þannig ertu okkur frábær fyrirmynd.
Vonandi hvílist þú og nærð aftur fyrri krafti. Passaðu líka að gefa ekki of mikið af þér þannig að við hin heilgleypum þig.
Bestu kveðjur Eyþóra
|
|
|
Post by Anna Bella on Sept 11, 2005 12:31:25 GMT -5
Takk takk stelpur... það er ómetanlegt að hafa svona fólk einsog ykkur allt í kringum mig... Kær kveðja Anna Bella
|
|