|
Post by Anna Bella on Sept 24, 2005 8:05:41 GMT -5
Komiði sæl stelpur & strákar!
Hér er spurning dagsins:
Hvað mætti betur fara í fitness á Íslandi?
þá er ég að meina bæði samböndin, fitness íþróttin almennt og komið endilega með allt sem ykkur dettur í hug. Endilega komið lika með sterku punktanna sem er að finna nú þegar líka
kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by Hanna Birna on Sept 27, 2005 12:10:36 GMT -5
Ég veit ekki hvað mætti betur fara af sjálfri keppninni en mér finnst sem áhorfandi að þá þarf að gera eitthvað meira í kringum keppnina, svona eins og í Galaxy keppninni, svo að fólk endist að horfa. Ég var alveg að gefast upp síðast þótt ég hafi rosa áhuga.
Kær kveðja Hanna Birna
|
|
|
Post by badda on Sept 27, 2005 17:21:03 GMT -5
Mér finnst að það mætti auglýsa þetta betur. Ef maður er ekki að fylgjast með þessu þá fer þetta alveg fram hjá manni.
Kveðja Badda
|
|
|
Post by hiddaj on Sept 29, 2005 5:36:50 GMT -5
:PHæ .. Góður punktur Anna ... ;D Sko.. Það sem mig mundi langa að betur mætti fara .. eða væri gaman að skoða .. Nr 1 .. að hafa bodyfitness-keppni .. svona t.d það gæti verið fólk sem er e.h meitt og er ekki gott að sér í hraðaþrautum eða getur einfaldlega ekki keppt í því ... en er kanski mjög gott á öðrum sviðum .. eins og body-inu Nr 2 ...hlutlausta dómara .. (eins og er að gerast núna í galaxy ) fá erlenda dómara .. því að hitt er orðið of þreitt og hálfgerð klíka.. Finnst manni orðið ... Fólk er farið að langar að sjá e.h nýtt ... Nr 3.. keppa eftir Hæð .. mér persónulega langar ekki að keppa við margar sem eru hausnum eða meria hærri en ég .. ég er mjög smágerð og lágvaxin og hlutfallslega þá mundi ég líta út eins og álfur út í hól við hlið á sumum .. sorry .. ekkert verra að vera lágvaxin eða hitt.. og nota bene ekki að kvarta .. líður ágætlega .. en þið vonandi skiljið hvað ég er að fara ... Nr 4... keppa eftir nýliðum og lengra komnum .. held að það sé fullt af nýju fólki sem langar að keppa, en þorir því einfaldlega ekki út af hræðlu við reynda liðið .. auvitað verður fólk að byrja e.h staðar og allt það .. en þetta er bara orðið það stórt sport í dag og fer stækkandi að það er alveg hægt að fara að hugsa þetta skrefinu lengra.. svo er ég með fullt að hugmyndum og fleirri svona í hausnum á mér .. vonandi er þetta e.h að því sem þú varst að leita af Anna Bella .. Og Vona að fleiri þora að koma með meira af þessu .. kær kveðja Hidda
|
|
|
Post by sandra on Sept 29, 2005 6:34:03 GMT -5
já mér finnst td hálf leiðinlegt hvernig IFBB mótið er... maður situr langt frá keppendum, sem eru upp á rosalega háum palli og lítil sem engin stemning í salnum. en reyndar var verið að reyna að gera meira úr því síðast með því að hafa vaxtarræktarmót líka sem er frábært, að hafa þessa heilsuhelgi... en þð vantar eitthvað... er reyndar rosa ánægð með hvernig galaxy mótið er þvi maður er nær keppendum og þeir hafa hljómsveit til að skapa meiri stemmingu... annars er ég alveg sammála hiddu með það sem hún var að segja..góðir punktar, það er örugglega ekkert grín að standa við hliðina á gellu sem er höfðinu hærri og búin að keppa í mörg ár þegar maður er að reyna að byrja að keppa....
|
|
|
Post by Anna Bella on Sept 29, 2005 7:55:35 GMT -5
Var farin að halda ég fengin engin svör hérna Góðir punktar hjá ykkur stelpur...og þá ætla ég að svara einu sem þið Hidda og Sandra komið með Ég er 1.57 cm á hæð ( gerist ekki mikið minni held ég ) og samt er ég að gera betri hluti en þær sem stærri eru! Í fitness er oftast betra að vera lítill uppá að eiga auðveldara með að þjálfa upp vöðvanna... það er erfiðara fyrir þær löngu að ná fallegum vöðvum og semitriu! Hvað varðar Nýliðum.... þá er það ekki þar með sagt að þó þú sért ný að þú sért ekki með þeim betri strax! Sjáið hana Sollu mína t.d hún keppti í fyrsta sinn í IFBB 2003 og var ekki búin að æfa e-ð geðveikt lengi en vann mig sem var bæði búin að keppa nokkrum sinnum og var í minu besta formi þá! Hún náði 2 sæti! Ef þið mætið vel undirbúnar til leiks þá er allt hægt! Nú og ef þið náið ekki góðu sæti þá er bara að fara heim.. stúdera það sem betur má fara, vinna í þvi og koma sterkari til leiks næst! Þangað til þið verðið bestar! En endilega komið með meira ef e-ð er vil heyra allt allt alllt ;D Ykkar aðdáandi Anna Bella
|
|
|
Post by eythora on Sept 29, 2005 16:45:00 GMT -5
Góðir punktar stelpur.
Ég er reyndar alveg sammála þessu með hæðina, ég er 152 stelpur svo jú Anna þær gerast minni.
Ég hef hins vegar það touch að samsvara mér mjög vel og er flott í vextinum.
Kannski þarf bara eitthvað meira kikk í Íslandsmeistaramótið, ég veit ekki alveg hvað það er en meiri auglýsingu, eitthvað meira sem trekkir.
Femínískahliðin á mér segir líka að mér finnst súrt hversu mikið stelpurnar þurfa að leggja á sig miðað við strákana. Þær fara í greiðslu, förðun, neglur og standa þarna á hælum en strákarnir setja smá gel í hárið og eru berfætir. Ég er ekki að setja út á okkur stelpurnar en þetta lítur bara svona út fyrir mér.
Ég vil líka sjá meiri af þrautum, þær eru svo skemmtilegar.
En bara pæling, veit ekki hvort ég á eftir að taka þátt en hver veit!
|
|
|
Post by hiddaj on Oct 3, 2005 7:38:02 GMT -5
;D ;D ;D ;D +Til hamingju með Afmælið Gyða ;D ;D ;D ;D
|
|
|
Post by Anna Bella on Oct 4, 2005 6:54:07 GMT -5
Sælar stelpur Já Eythóra mín.... þær gerast minni en ég... en eins og Mamma mín sagði alltaf þegar ég kvartaði yfir smæð mína "dýrmætustu gjafirnar fást í litlum umbúðum " En nú ætla ég að rökræða við þigþú segir "Femínískahliðin á mér segir líka að mér finnst súrt hversu mikið stelpurnar þurfa að leggja á sig miðað við strákana. Þær fara í greiðslu, förðun, neglur og standa þarna á hælum en strákarnir setja smá gel í hárið og eru berfætir. Ég er ekki að setja út á okkur stelpurnar en þetta lítur bara svona út fyrir mér. " Við þurfum ekki að gera þetta! Það er bara okkar val! Við viljum líta vel út á sviði og þessvegna gerum við þetta. Alveg eins og þegar við förum á djammið eða árshátið ..... þá gerum við allt þetta á meðan þeir setja smá froðuí hárið og eru ómótstæðilegir fyrir vikið! Persónulega finnst mér þetta "beautystúss" bara skemmtilegt tímabil ... það er alltaf svo gaman að gera sig fína Annað....... þú nefnir að það mætti vera meira af þrautum! Ég er algerlega á móti þvi! Til þess er þrekmeistarinn ... Ég til dæmis sem er hálfskemmd eftir bílslys gæti kvatt keppni algerlega ef þeir myndi setja fleiri þrautir. Meira að segja er hraðaþrautin trygging fyrir þvi að ég verði aldrei nokkurn timann Íslandsmeistari þó ég vinni samanburðinn! Ég er alls ekki að setja útá þínar skoðanir mundu það krúttið mitt heldur að koma með mótrök! En stelpur..... Er ekkert sem ykkur finnst vanta fyrir stelpur bæði nýliða og lengra komnar varðandi undirbúning til dæmis? kær kveðja Bella
|
|
|
Post by hiddaj on Oct 4, 2005 7:07:59 GMT -5
Sammála þessu með dúlleríið .. það er svo gaman að gera sig sætan .. og líta glæsilega út.. Er sjálf búin að læra förðun og finnst fátt eins skemmtilegt og að breyta til og prófa nýtt og gera mig fína .. Og með hraðaþrautirnar.. ó nei takk fyrir ekki fleirri :-/finnst þær alveg nógu skerí fyrir .. En Það er e.h sem þú ert að fiska eftir Anna og við erum greinilega ekki að koma með það .. humm Anna hvað ert að spá .. ég er að reyna að hugsa út í e.h meira en held að ég hafi komið með allt um daginn sem ég hef verið að spá í .. Bíddu nú við .. .. leyf mér að hugsa smá .. hehe kv Hidda
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Oct 4, 2005 10:40:34 GMT -5
Hæ Hidda mín, Já ég er að fiska eftir svari afhverju það eru ekki fleiri stelpur að keppa? Nú VEIT ég fyrir víst að það eru margar konur að gæla við að keppa...byrja jafnvel undirbúning og alles og 80% kvenna hætta á miðri leið...AFHVERJU? ? Ég veit að þetta er erfitt og griðarleg vinna... En það vita þær lika þegar þær byrja að " kötta " Hvað veldur að þær hætti? Er e-ð hætt að gera til þess að þessi háa tala minnki amk um helming? Hvað finnst ykkur sem hafa byrjað en hætt við í miðri leið? Hvað hefði þurft til þess að geta klárað? kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by Anna Bella on Oct 4, 2005 10:47:47 GMT -5
Úpssssss Sorry............... Helga var að fikta pínu í tölvuna hjá mér og gleymdi að logga sig út þessi elska..... . Þannig að fyrir vikið svaraði ég Hiddu á Helgu nafni hihihi kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by hiddaj on Oct 4, 2005 11:28:06 GMT -5
úfff... sko .. ég hef ekki náð það langt að byrja að kötta og get því ekki svarað fyrir aðra, en ég skal lofa þér því að þegar ég byrja að kötta þá skal ég ekki hætta við á miðri leið ..... ;D p.s Hvar eruði stelpur .. Ellý og Erla .. Rúna .. Halló .. kv Hidda
|
|
|
Post by sandra on Oct 5, 2005 10:02:41 GMT -5
ég hætti að kötta út af því að það var alltaf verið að skipta sér af mér.... annað hvort var ég rökkuð niður eða hvött áfram.... en sé það núna að það var út af afbrygðisemi sem ég var rökkuð niður og eiginlega beðin um að taka ekki þátt. mér gekk rosalega vel að kötta og var nokkuð ánægð en.. sjálfsálitið hvarf þegar ég var rökkuð niður og talið trú um að þetta væri ekkert fyrir mig en svo fékk ég að heyra það frá öðrum þegar ég hætti við því að þetta væri einmitt keppni fyrir mig... varð bara gjörsamlega rugluð og ákvað að bíða í ár og bæta það sem var sett út á mig núna loka ég bara eyrunum og geri það sem ég vil!
|
|
|
Post by Anna Bella on Oct 5, 2005 14:59:48 GMT -5
Hver var svo mikilvægur að þú ákvaðst að fara að hans/hennar ráðleggingum að keppa ekki? kærastinn þinn? Vertu viss elsku Sandra mín og þið hinar sem kannist við þetta hjá ykkur sjálfar að fylgja innri rödd ALLTAF.... sama hvað það er, þið finnið innst inni hvort e-ð sem þið sjáið, heyrið eða lesið er rétt eða rangt. Ef þið viljið keppa og þið eruð ekki vissar hvort þið eigið erindi eða ekki ... hafið frekar samband við mig ef þið viljið og ég skal skoða ykkur og segja ykkur MITT álit og þið munuð fá heiðarlegt álit ... þó það sé ekki heilagt...að lokum er það alltaf ykkar að taka ákvörðun um hvað þið ætlið að gera.
Mér finnst svo sorglegt þegar ég heyri e-ð svona! Takk fyrir innleggið þitt Sandra mín
kær kveðja Anna Bella
|
|