|
Post by eythora on Oct 5, 2005 18:11:02 GMT -5
Anna Bella mín, mér finnst frábært að lesa eftir þig. Þú hefur svörin á reiðum höndum og rökstyður mál þitt vel. Frábær mótrök og ég ætla ekkert að mótrakast við þig.
Hins vegar er núna að veltast í kollinum á mer munurinn á vaxtarækt og fitness! Segjum að ég tæki þátt í Þrekmeistaranum þá er ég í því sem mér finnst skemmtilegast og þarf ekki að hugsa um að kötta og þann pakka (væri samt kúl að sjá hvernig maður yrði) en í vaxtaræktinni þá er bara farið eftir líkamsburðinum ekki satt?
Bara pæling.
Kær kveðja Eyþóra
|
|
|
Post by kolla on Oct 6, 2005 15:03:46 GMT -5
Hæ hó allar saman langt síðan ég hef komið hingað inn á Að hætta á miðri leið er eitthvað sem ég hef tileinkað mér mjög mikið í gegnum tíðina. Sérstaklega hvað varðar að keppa í fitness. Ég hef ætlað mér að keppa í fitness síðan ég var 18. Nú er ég 24 og hef aldrei keppt. Fitness er eitthvað sem mig langar að hafa að lífsstíl núna og í framtíðini en samt næ ég ekki að tileinka mér þennan lífsstíl sem ég vil. Ég veit ekki hvað það er, en ég er uppgjöfin uppmáluð þegar kemur að skera niður ég veit ekki hvað ég á að gera til að breyta hugsuninni...hummm... það virkar nú eins og ég sé algjör uppgjöfisti (ef það er þá orð) en það segja allir við mig að þetta sé ákvörðun sem maður tekur. En fyrir mér er þetta eitthvað meira en ákvörðun. Ég get ekki alveg útskýrt þetta... en ég held í vonina um að ég geti einhvern tíman keppt og orðið jafn góð og þú...jafnvel betri Anna Bella mín;) hehehe maður á nú alltaf að vera jákvæður. Humm... Anna er þetta eitthvað sem þú varst að fiska eftir. Mér langað að snúa lífi mínu algjörlega við..... það virðist bara vera eins og það sé ómögulegt fyrir mig Hjálp!!! Bless snúllur og ég læt nú heyra aðeins oftar í mér hérna núna ;D
|
|
|
Post by momsa on Oct 11, 2005 8:18:31 GMT -5
Hæ, hæ.
Finnst allt mjög góðir punktar sem hafa komið fram. Það sem ég rak mig á þegar ég var að reyna að skera niður var nákvæmlega hvernig átti að gera hlutina þegar maður er að gera þetta í fyrsta skiptið. Maður fékk svo mikið af misvísandi ráðum, einn gerir hlutina svona og annar hinsegin. Auðvitað er það misjafnt og einstaklingsbundið hvað hentar kannski hverjum. En mér fannst í raun enginn vera fullkomlega hreinskilinn hvernig best væri að byrja og til hvaða ráða ætti að grípa ef hlutirnir væru ekki að ganga nægilega vel. Svo var líka alveg eitthvað um að fólk væri að gefa ekki svo góð ráð, kannski til að skemma fyrir ég veit það ekki.
Annað sem ég held að væri sniðugt að ræða meira er að gera fólk meðvitað um eftirköstin, þ.e hvað gerist eftir mót. Grunar að margir átti sig ekki á því að það er ekki raunhæft að vera í svona ástandi alltaf, amk gerði ég það ekki og samt fór ég ekki alla leið.
kv. momsa
|
|
|
Post by Anna Bella on Oct 12, 2005 13:46:50 GMT -5
Sælar stelpur,
Þið eruð allar að koma með rosa góðar athugasemdir. Málið er að nú er ég í fyrsta sinn að þjálfa konu frá grunni til að keppa í Fitness og er það búið að kenna mér rosalega mikið! Það er allt öðruvisi að þjálfa konu í fitness og bera ábyrgð á að skila henni í toppstandi uppá svið og að undirbúa ´mig sjálf fyrir mót. Það sem ég er að hugsa jafnvel er að fara af stað með einhverskonar "fitnessskóla" í náinni framtíð sem myndi ganga útá það að hitta tilvonandi keppendur viðsvegar að, einu sinni í viku í 12 vikur. Kenna þeim pósurnar, fara í gegnum matarræðið, æfingarnar og síðast en ekki síst sálfræðina á bakvið. Þetta er griðarleg vinna á bakvið svona þjálfun og þarf ég þvi að skoða þetta mjög vel. Haldiði að það sé einhver markaður fyrir svona? hvað væruð þið til í að borga mikið fyrir svona þjálfun? Mynduð þið treysta ykkur til þess að treysta mér í blindni og gera eingöngu það sem ég segði ykkur burtséð frá þvi sem allir aðrir segja? Hreinskilin svör takk!!!!!! Ef það er e-ð af þessu sem þið treystið ykkur ekki til að svara hreinskilnislega... ekki svara þeirri spurningu þá! Ok Kær kveðja, ykkar vinkona Anna Bella
|
|
assa
Nýr meðlimur
Posts: 1
|
Post by assa on May 10, 2006 17:26:45 GMT -5
Sæl Anna Bella.
Ég var að skoða þessa síðu í fyrsta skipti og finnst agalegt að engin hafi svarað þessu hjá þér um fitnessskólann. Ég held að þetta gæti verið mjög sniðug hugmynd og eitthvað sem er mikil þörf á. Ég veit samt ekki hvort það yrði einhver gríðarleg þátttaka en það yrði alveg nóg. Sambandi með verðið þá yrðu þetta í kringum 12 skipti væri þá ekki sanngjarnt að borga svipað verð og þú ert að taka fyrir einkaþjálfun á mánuði. Það eru oftast 12 skipti ekki satt? 3 sinnum í viku í mánuð.
Kv.Assa
|
|
|
Post by gunnsa on May 15, 2006 15:03:19 GMT -5
Hæhæ sæta fólk:) Anna, með fitness skólann þá held ég að fyrir mitt leyti væri sanngjarnt verð fyrir 12 vikur kannski um 30.000, miðað við 1x í viku? Þá væri innifalið matar-og æfingaprógramm og mælingar, ekki satt? Úff ég veit það samt ekki, ég er svo illa að mér í viðskiptum hehe:) En ef ég væri að fara að keppa þá fyndist mér það rosa fínt. En mér finnst þetta mjög góð hugmynd hjá þér og myndi segja að það væri sniðugt að halda henni til streitu ef þig langar þetta:) Og já, ef ég myndi velja þig sem minn þjálfara þá myndi ég treysta því 100% sem þú segðir, þar sem að þú hefur náð frábærum árangri sjálf og mér fannst Kristín rosalega flott eftir þjálfun hjá þér.
En hvað finnst þér um þetta dúllan mín? Já og tvíburasystir þín kom út í búð til mín í Árnesi fyrir nokkrum vikum, ekkert smá fyndið! Hún hélt örugglega að ég væri eitthvað skrítin þar sem að ég horfði voðalega skringilega á hana, haha;) Kær kveðja, Gunnhildur
|
|
|
Post by Anna Bella on May 18, 2006 10:17:07 GMT -5
Halló Gunnhildur mín og þið allar ;D Fyndið að sjá fólk svara þessari fyrirspurn núna ... Löööööngu seinna... var meira að segja búin að gleyma þessu ;D En takk fyrir góðar ábendingar stelpur og aldrei að vita nema ég láti þetta verða að veruleika einhvern timann í framtíðinni En nei Gunnsa mín systur minni fannst þú ekkert skrýtin enda við með nokkurra ára reynslu af að láta rugla okkur saman Sjáumst hressar og kátar kær kveðja Bella
|
|