|
Post by Anna Bella on Nov 9, 2005 3:37:08 GMT -5
Jæja stelpur og strákar
Nú vil ég sjá alla á fitness á morgun og hvetja keppendurna.. Við erum jú öll áhugafólk um líkamsrækt og nauðsynlegt að styðja þau sem fara alla leið. Hef ég heyrt að hún Gyða okkar ætli að mæta aftur og verður gaman að sjá hana aftur á svið. Takið eftir hana Kristínu sem er bæði aldursforseti og að keppa í sinni allra fyrstu keppni og kemur hún frá Selfossi. Verð ég að viðurkenna að hún er það allra skemmtilegasta verkefni sem ég hef tekið að mér og hefur hún vakið nyja sýn hjá mér um fitness. Mér finnst svo miklu MIKLU skemmtilegra að þjálfa konu í keppni heldur en að keppa sjálf ( ótrúlegt en satt ). En jæja krakkar.. hlakka voðalega til morguns.. er spenntari en nokkru sinni fyrr ... sennilega vegna þessa frumrauns.
kær kveðja ykkar aðdáandi
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Nov 9, 2005 19:43:54 GMT -5
mér leiðist að segja þetta en ég kemst alls ekki, þótt ég vildi fyrir alla muni geta sleppt því að gera KERTI þá verður það að ganga fyrir. en ég óska þér og Kristínu góðs gengi og ég krossa fingurnar fyrir hana það er það besta sem ég get gert í augnablikinu xoxoxoxooxoxox
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Nov 10, 2005 11:07:45 GMT -5
við viljum fréttir sem heimasitjum er ekki með sýn svo þið verðið að vera duglegar að pósta um þessa keppni xoxoxoxooxoxoxo
|
|
|
Post by hiddaj on Nov 10, 2005 12:44:15 GMT -5
Hæ stelpur já ég get því miður ekki komið á samanburðin í varmá, en ég mæti pottþétt a laugardaginn. Hlakka til að sjá þig Anna mín aftur .. það var svo gaman að hitta þig í gim 80 um daginn ég var ekki alveg jafn feimin þá og síðast .. En ég verð að monta mig aðeins ...hehe sko ég er að fara að gifta mig og sko það er í alvöru... 10 des .. næstkomandi ...já veit það við erum klikkuð og þetta er engin tími þangað til , en okkur fanst þetta bara vera komin tími til og ég á svo indislega vini og fjölsk. sem hjálpa mér að gera allt og græja svo þetta er ekki neitt sérstaklega erfitt að plana .. það eina sem þarf erum við tvö. vinir fjölsk.prestur og kertaljós þá er ég sátt .. en vildi bara deila þessu með ykkur... mont mont.. jja þarf að fara að gera boðskort ekki seinna vænna hehe ;D heyri í ykkur fallegu konur ...kv Hiddsí
|
|
|
Post by gydae on Nov 11, 2005 6:29:07 GMT -5
Hæ Anna, Gyða hér sem þú aðstoðaðr fyrir bikarmótið mér langaði bara að láta heyra í mér og óska þér til hamingju með flotta skvísu á sviðinu í gær, þvílíkur skuður en því miður gat ég ekki verið með núna vegna veikinda en ég e síður en svo hætt æfi alltaf hrikalega! Gangi ykkur rosa vel á laugadaginn
|
|
|
Post by Anna Bella on Nov 11, 2005 13:30:12 GMT -5
Byrjum á þér Hidda!!!!!!!! TIL HAMINGJU hjartaknús Mikið rosalega er ég hamingjusöm fyrir ykkar hönd! verður brúðarkjóll og alles? Leyfðu okkur endilega að fylgjast með undirbúningnum ( er enn svo heit síðan við giftum okkur í sumar... sjáðu til Nú að þér Gyða mín! Mikið þykir mér leit að heyra um veikindin og vona að þau séu ekki alvarleg og að þú getir verið með næst. Takk fyrir hamingjuóskirnar með stelpuna mína Ég er alveg HRIKALEGA stolt af henni og vona aðhún skemmti sér og búi að þessari reynslu forever! kær kveðja ykkar áðdáandi hlakka til að sjá ykkur og um að gera að vera EKKI feimnar og koma og heilsa uppá mér.... ef þið þorið
|
|