Post by Anna Bella on Nov 13, 2005 10:56:49 GMT -5
Ég ætla nú að byrja á að hrósa þvi sem vel er gert og þið megið eiga það að þið haldið skemmtileg mót og engu er til sparað og fæ ég iðulega kitl í magann að langa jafnvel að gefa ykkur tækifæri og keppa aftur hjá ykkur. En í hvert sinn minnið þið mig á afhverju ég á EKKI að gera það. Ég ætla að minna ykkur á hversu heitt ég elska þetta sport og ætla að tala við ykkur beint sem reyndur og sterkur keppandi.
Hvað sækist ég eftir þegar ég keppi? Ég sem vel að keppa í FITNESS er fyrst og fremst að stefna á að sigra í SAMANBURÐI. Ef það væri HRAÐAÞRAUTIN og greinarnar sem ég væri að sækjast eftir þá er þessi lika fína þrekmeistarakeppni haldin fyrir norðan til að uppfylla þörf mina á hraða og styrk. Þessvegna verðið þið hreinlega að ákveða hverskonar keppendur það eru sem þið viljið sjá í keppnina ykkar. Ég hreinlega sé ekki ástæðu til að koma og keppa hjá ykkur þegar ég veit að ég gæti aldrei orðið Íslandsmeistari þegar tillit er tekið til þess að sama hversu góð ég er... ef ég er ekki góð í greinunum þá kemst ég ekki á pall. Ég sæi ekki ástæðu til að ganga í gegnum 12- 15 vikna erfiðan undirbúning til að tapa fyrir manneskju sem er bæði yngri en ég og hefur kannski alls ekki gert heimavinnuna sina og mætir eins og bolti á svið en hefur snerpuna. Ég hef aldrei komið illa undirbúin á svið og geri aldrei 2 x sömu mistökin. Hvernig ætlið þið að selja keppanda eins og mér þá ástæðu afhverju ég ætti frekar að keppa hjá ykkur? Ekki segja mér " af þvi við þurfum ekki á þér að halda" Vegna þess að það er ekki rétt... jú kannski ekki mér persónulega.. en þið þurfið á keppanda eins og mér að halda. Þessvegna hafið þið svona mikið fyrir þessi mót. IFBB mótshaldarar eru vinir mínir en þvi miður verð ég að viðurkenna að það er ekkert "gaman" að keppa hjá þeim... það koma ekki margir að horfa á vegna þess að andstætt þvi sem þeir halda þá er það ekki hraðaþraut sem fær fólk til að koma og horfa á.. En þeir mega eiga það að þeir eru með Skyra stefnu... þeir eru að halda FITNESSMÓT... og ég sem keppandi veit það að ég muni fá sanngjarna dóma og úrslit miðað við undirbúning minn. Og ég sem keppandi vel það umfram allt.
Sjáum karlaúrslitin... það á ekki að geta átt sér stað að karlmaður sem lendir í 7 sætií samanburði verði Íslandsmeistari!!!!!!!!! Hvaða skilaboð eruð þið að gefa til fólks sem langar að koma og prófa að keppa? Verið ekkert að leggja á ykkur að æfa samviskusamlega, verið ekkert að leggja á ykkur að lifa heilbrigðu lifi, verið ekkert að leggja á ykkur að skera niður fyrir mót
verið ekkert að legja á ykkur að æfa stöður ykkar
Ef þið eruð nógu sterk og hröð þá verðið þið meistarar!!! Þetta er ekki fitnessmót lengur heldur þrekmeistari !!!
Ég meina Kjartan á marga góða kosti en hann er ekki með fitnesslook sem fær fólk til að hugsa "svona vil ég vera"
Hann er ekki með samræmi! hann lítur ekki einu sinni út fyrir að lifa heilbrigðu lifi enda settuð þið hann í 7 sæti!!
hafið þið hugsað til enda hvað ÍSLANDSMEISTARI í FITNESS stendur fyrir?
Hann á að vera fyrirmynd hann á að vera talsmaður fitness. Munið það kæru mótshaldarar að séuð þið ekki með góða keppendur þá eruð þið ekki með gott mót.
Munið það að í fitnesskeppni vill fólk sjá á pallinn sá og sú sem kom best út á sviði!
Það er alveg rétt að þið áttuð að breyta vægi samanburðar... ekki niður.. heldur upp. Sama hvað almenningur segir.... það erukeppendurnir ykkar sem skipta máli og það sem þau trúa að þau séu að keppa í
t.d svona,
Hraðaþraut 15%
Armbeygjur 10 %
fitnessgreip 5 %
samanburður 70% ( aldrei minna)
Þannig komið þið í veg fyrir að fá "óskorna" keppendur sem hafa ekki unnið heimavinnuna sina á fitnessmót sem ber að taka alvarlega.
Kær kveðja Anna Bella .