|
Post by gydae on Nov 23, 2005 6:32:33 GMT -5
Sælar Stelpur! Ég e því miður ekki að fara að tala um neitt skemmilegt heldu um neikvæða þáttinn í fitness og þvímiður eins og með regluleisi í samanburði þá þarf að vera slíkur þáttur. Ég vann fitnessgreipina á bikarmótinu í apríl og náði mjög góðum tíma sem stelpurnar á íslandsmeistaramótinu náðu ekki að fella og auðvita svaka montinn með það en þvímiðu er til afbrýðisamt fólk sem kann ekki að samgleðjast manni heldur reynir að skemma fyrir. Ég var spurð um daginn hvort ég hafi notað bönd á mótinu, sem er auðvita alveg bannað ég sagði nei og viðkomandi sagði að margir væru að segja þetta og mér finnst það mjög leiðilegt, ég sagði viðkomandi einnig að fara á icefitness.is því þar er hægt að sjá video clip af þessu. Einnig man ég þegar ég las geinina þína Anna Bella í held ég Vikuni um hvað fólk reyndi mikið að skemma fyrir þér þegar þú varst að byrja t.d að þú ættir að borða mikið salt! hvað er málið? Afhverju er svona erfitt að samgleðjast og hjálpast að hverju töpum við á því? ég gleimi því aldei þegar ég heimsótti Önnu Bellu fyrir mótið mitt til að fá hennar f*gmanlega álit, þá þekkti ég hana ekkert en hún tók mig opnum örmum og hefði það ekki verið fyrir hana hefði ég sennilega ekki keppt Endilega kömmentið ef þið hafið eithvað il málna að leggja. Kær kveðja Gyða
|
|
|
Post by Anna Bella on Dec 1, 2005 15:09:12 GMT -5
Sæl Elsku Gyða mín,
Já þvi miður er þetta erfiður "bisness" og mikið til af fólki sem reynir að upphefja sig með þvi að annaðhvort skemma fyrir öðrum eða baktala meðkeppendurna.. Þessvegna beini ég orðum mínum til ykkar sem það gera... og veit ég um eina slíka er enn´að keppa og veit ég að ef hún les þetta þá veit hún að ég er að tala til hennar! Að reyna vísvitandi eða óbeint (með þvi að leka slæmum kjaftasögum )að eyðileggja mannorð félaga sinna tel ég vera veikleikamerki og merki um það að manneskjan sé EKKI tilbúin að stíga á svið og/eða keppa á eigin forsendum. Þeir sem þetta gera eru mjög óöruggir og vita uppá sig skömmina þegar kemur að þvi að ræða "heimavinnuna". Þið sem eruð svo illa stödd að þið virðist halda að ykkar eini "möguleiki" sé að sverta félaga ykkar í sportinu... segi ég að ég finn hjartanlega til með ykkur og ykkar vanlíðan. Vegna þess að þið munuð sjá það að daginn sem þið horfið í eiginn barm og sjáið hvað ÞIÐ getið lagað hjá YKKUR! og skammið YKKUR SJ'ALF.. þá FYRST verðið þið hættuleg! En fyrst og fremst VERÐUGIR andstæðingar. Þið munuð aldrei öðlast frægð eða virðingu innann sportsins sem utan þegar þið talið illa um félaga ykkar!. Gyða mín... mundu það elsku vinkona að að verða best í þessu sporti er dýrkeypt en haltu höfðinu uppi, vertu alltaf jákvæð og tilbúin að aðstoða og fólk mun hætta að tala illa um þig vegna þess að þeir myndu vita að þeir kæmust ekki upp með það... Alltof margir myndu elska þig. Vertu stolt af þér og haltu áfram að vera dugleg
kær kveðja
ykkar sanna vinkona Anna Bella
|
|
|
Post by gunnsa on Dec 22, 2005 16:31:16 GMT -5
Ég verð bara að segja Gyða að ég dáist að þér, og þér Anna Bella líka. Fyrir að vera samkvæmar sjálfum ykkur, og fyrir að ná svona langt í þessu sporti sem ég lít mikið upp til. Og það er frábært að vera það sjálfsöruggur að geta hjálpað fólki sem er að keppa á móti manni, með því að gefa þeim góð ráð. Ég hef sjálf aldrei keppt en ég stefni hinsvegar á það í nánustu framtíð, og mér fyndist leiðinlegt að ganga inn í spennuþrungið andrúmsloft með fólki sem reyndi að skemma fyrir manni. Bæði er það ekki falleg hegðun og þegar ég byrja að keppa fyndist mér bara ekkert gaman að fólk hefði skemmt fyrir mér þannig að ég myndi ekki ná tilsettum árangri, eða að hafa skemmt fyrir þeim sem væru að keppa á móti mér. Einfaldlega vegna þess að ef að ég myndi ná langt þá væri ekki gaman að vita til þess að það væri BARA út af því að ég hefði skemmt fyrir hinum. ,,Hey, ég vann fitness keppnina út á það að hinir gátu ekki neitt..." Alls ekki sniðugt. Ég er þessvegna hjartanlega sammála ykkur og Anna, ég hlakka til að sjá þig í Styrk eftir áramót:) Það er gott að hafa manneskju fyrir framan sig þegar maður er að æfa, sem maður lítur upp til.
Baráttukveðja, Gunnhildur
|
|
|
Post by hiddaj on Dec 27, 2005 6:38:49 GMT -5
Innilega til Hamingju með afmælið Anna Bella.koss og knús Gleðileg jólin stelpur takk fyrir árið hérna á síðunni og vonandi er þetta koið til að vera og ég óska ykkur öllum gleðilegs árs og takk fyrir spjöllin og allt hérna .. kær kv Hidda
|
|
|
Post by nickxdgbec on Dec 1, 2008 2:09:49 GMT -5
|
|