Post by Anna Bella on Apr 17, 2006 6:57:44 GMT -5
Halló halló halló
Að sjálfsögðu verður maður að skrifa um fitnesshelgina sem var á Akureyri nú um helgina og vil ég að sjálfsögðu byrja á að óska sigurvegurunum hjartanlega til hamingju með sigurinn. Mér fannst dómararnir standa sig með prýði og hreinlega EKKERT útá dómgæsluna að setja. Það er gott sem keppandi að vita að maður verður dæmdur að verðleikum. Til hamingju dómarar.
Uppfull af hlutleysi ætla ég samt að að segja að Stína sem vann kvennaflokk 35 ára og eldri hafði í raun ekkert erindi í þennann flokk heldur ætti hún að keppa í opna flokknum næst og mun hún veita okkur harða samkeppni þar!
Heiðrún var virkilega vel að sigrinum komin og hef ég aldrei séð hana eins góða og nú og er hún greinilega búin að finna lausnina á samræmi vöðvana... Hún má vera betur skorin en þar sem hún er að fara erlendis að keppa þá getur maður skilið að hún hafi verið að spara skurðinn örlitið. Framkoma hennar og pósur voru unun á að horfa og greinilega vön manneskja á ferð !
Harpa í opna flokknum var glæsileg og mikil bæting síðan í fyrra og stefnir langt hvort sem hún ætlar í vaxtarrækt eða fitness. Stórglæsileg stúlka þarna og geislar hreinlega af henni ... Alveg full ástæða að hræðast hana sem keppinautur. Nú er bara að vinna doldið meira í lærunum stelpa...
Solla Solla Solla ;D æææðisleg! annað sætið var hennar en mér fannst hún eiga í baráttu við Hörpu ... aðallega þó vegna þess að Harpa seldi sig miklu betur ! Solla hafði betra samræmi.... en það er ekki nóg... þið verðið að kunna að selja ykkur ALLAN tímann.
Valdís Ég setti hana í 4 sæti í samanburði.... Hún var glæsileg og fylltist öryggi og baráttugleði þegar hún var kölluð fram í fyrsta útkalli ásamt Heiðrúnu, Sollu og Hörpu. Og í þeirri baráttugleði sem fyllti hana þá sá maður að hún gæti alveg barist um 3ja sætið EN..... gleðin hvarf um leið og hún var kölluð fram með hinum stelpunum. Ég veit manna best hvernig sú tilfinning er að finnast eins og maður sé búin að tapa... ég man á Norðurlandamótinu þá í einni lotunni þá var ég aðeins kölluð einu sinni fram og mér leið vægast sagt ömurlega.... málið er að dómaranir voru búnir að setja mig í sæti og þurftu ekki að skoða mig neitt meir... til að gera langa sögu stutta þá lenti ég í 3ja sæti remember?
Um leið og maður fyllist vonleysi og óöryggi þá hættir maður að selja sig og þar af leiðandi hættir maður að fela gallanna... Munið það stelpur næst að selja ykkur ALLAN timann .. lika þegar ykkur finnst allt vonlaust.... vegna þess að með þvi að gefast upp þá eruð þið að segja dómurunum að þið eigið ekki skilið sæti ofarlega og gefið keppinautum ykkar sæti fyrir ofan ykkur á silfurfati.
Mér fannst allar stelpurnar glæsilegar og öfundaði ég þær allar fyrir glæsileika og dugnað og ég get sagt ykkur það að ég mun aldrei framar sleppa þvi að keppa á nokkru móti sem mér verður boðið á!
Ég vil enda á þvi að þakka þeim stelpum sem treystu mér og leituðu álits hjá mér og gaf það mér mjög mikið.
Vonast til að sjá og keppa við flestar ykkar á næsta Íslandsmóti.
Kær kveðja Anna Bella