|
Post by Anna Bella on Apr 28, 2006 4:03:44 GMT -5
Halló þið öll. Kristín sem var Íslandsmeistari 35 ára og eldri og Solla sem lenti í 2 sæti á opna flokknum eru að fara að keppa á Grand Prix mót í fitness sem verður haldíð í Svíþjóð 21 Mai nk. Að sjálfsögðu fer Heiðrún líka enda sleppur hún aldrei tækifæri á að keppa . Stína og Solla eru báðar enn í þrusuformi síðan á Íslandsmótinu og hlakka ég ekki smáræðis til að sjá hvernig þeim gengur þarna úti. Helst af öllu hefði ég viljað fara með.... Mér finnst að ég eigi fara með..... það er eiginlega óhæft annað....... finnst ykkur það ekki? ha? ha? Ég meina .... það hefur nú ekki slitnað naflastrengurinn á milli okkar Stínu.... og það er bara rugl að það ssé að fara að gerast núna ........ úffffff . Svona er þetta bara. Annars er það að frétta af mér að ég er að stefna á Hm í haust og er byrjuð á fullt að æfa fyrir það. Vissuð þið að topp 3 mættu keppa á Miss Olympia? ?? BARA draumur minn!!!!! Ég er búin að segja stelpunum sem vinna hjá mér að ég ætli mér að nota mér þær betur svo ég geti keppt í haust!!! Jæja ......... ætla að hætta þessu eintali í bili og koma mér í vinnuna. Látið nú heyra í ykkur kær kveðja Bella
|
|
|
Post by gydae on May 1, 2006 18:04:55 GMT -5
Takk fyrir síðast Anna mín! Það er ekkert smá frábært að þær séu að fara út, bara go girls!! Og Anna nú er bara stefnan á ms. fitness olympia, vá! þá bara þyrfti maður að skella sér út að horfa Gyða í gýrnum ;D
|
|
|
Post by gunnsa on May 5, 2006 7:13:45 GMT -5
Hæhæ Vá það bara næstum leið yfir mig þegar ég sá hana Kristínu, vávává...ekkert smá flott, í fantaformi. Var einmitt að skoða myndir af mótinu núna. Og gangi þér sem allra best í undirbúningnum! Ég hef bullandi trú á þér eins og alltaf. Vonandi sér maður þig fljótlega. Kær kveðja, Gunnhildur
|
|
|
Post by herpill on May 6, 2006 18:55:53 GMT -5
Elsku Anna Bella mín ! Takk æðislega fyrir mig, búðin þín er æðisleg og margt hægt að finna þar, það hefði verið gaman að hitta þig en ég á eftir að koma aftur í búðina þína því hún er æði. Þúsund þakkir. kveðja Harpa Sæm
|
|
|
Post by Anna Bella on May 10, 2006 6:34:35 GMT -5
Ahhhhhhhh Elsku Harpa mín, Svo fúllt að missa af þér En æðislegt að þú hafir fundið e-ð á þig! Vonandi sé ég ykkur flestar sem oftast kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by badda on May 22, 2006 5:41:55 GMT -5
Vaaá já það er kraftur í ykkur. Hef ekki verið dugleg undanfarið, vantar tíma og fleiri ömurlegar afsakanir en þegar ég les þetta þá sé ég að ég verð að fara að taka mig á. Ég sá Kristínu í styrk um daginn og hún er svo sannarlega orðin flott. Ég tók eftir henni um leið og hún gekk í salinn, rosa flott. Væri gaman að ná þessu formi einhvern tímann. Gaman að lesa frá þér Gunnsa, greinilega mikill keppandi í framtíðinni ef þú heldur svona áfram, við fylgjumst með þér - pottþétt
|
|
|
Post by gunnsa on May 24, 2006 8:21:43 GMT -5
Æj takk:) Það er yndislegt að heyra þetta, ég þarf á því að halda akkúrat núna:) Vil líka bara segja ykkur að það er svo endalaust gaman að hafa svona spjallsíðu til að kíkja inná og halda sér við efnið, manni langar alltaf í ræktina þegar maður kemur hérna inn, hehe. Kv. Gunnsa www.blog.central.is/fit4life
|
|
|
Post by heidrunfit on Jun 1, 2006 20:27:06 GMT -5
OG talandi um hvað þetta var geggjuð ferð!!! ;D ;D þetta var svo skemmtileg ferð hjá okkur!! Langaði bara að segja takk fyrir allt stelpur og hittumst svo allar 4 sama á Spáni og endurtökum leikinn!!!! kveðjur að norðan Heiðrún
|
|