|
Post by Anna Bella on Dec 8, 2006 13:43:03 GMT -5
Sæl veriði, Þið hafið sennilega tekið eftir að forsíðan er búin að haldast óbreytt ansi lengi ... til þess eru 2 mjög góðar ástæður!!! 1) ég kann persónulega ekkert að uppfæra síðuna 2) Helga mín sem er hönnuður síðunar og hefur séð um að uppfæra er búin að liggja á spítala eftir að hún fékk alvarlegan vírus sem hefur gert það að verkum að hún hefur misst um 70 % mátt í líkamanum! Batinn er hægur en lítur út fyrir að komi samt .. vonandi að öllu leyti. Þessvegna bið ég ykkur að minnast Helgu í bænunum ykkar og að sýna okkur þolinmæði yfir þvi að vera ekkert búin að uppfæra og að það sé ekki að gerast alveg á næstunni. Kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by badda on Dec 11, 2006 19:05:24 GMT -5
Kæra Helga
Sendi þér mínar bestu kveðjur og vona að það veiti þér styrk í baráttu þinni.
Kær kveðja Badda
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Apr 14, 2007 5:13:12 GMT -5
Jæja stelpur, nú er ég að komast í gang aftur, fékk sjúkdóm sem kallast GBS .. sem er í gríni sagður heita "get better slowly " Ég lamaðist á höndum og fótum, en var heppin því ég fór ekki í öndunarvél, lungun sluppu. þetta gerðist í nóvember og talið vera af sýkingu sem ég fékk frá kjúklingum Camfolybactería. Mátturinn í hendurnar er kominn en ekki að fullu. Fæturnar eru að koma inn en jafnvægið vantar þ. e. öklarnir eru ekki alveg að fatta að þeir eiga að vinna líka svo veit ég ekki en hvar tærnar eru Þetta er ótrúlegur sjúkdómur og ég verð allt árið að jafna mig, en með þrotlausri þjálfun kemur þetta allt Ég er búin að vera á Reykjalundi síðan í janúar og fæ frábæra þjálfun þar. kv. Helga
|
|
|
Post by badda on May 9, 2007 16:06:01 GMT -5
Velkomin aftur Helga, gott að fá þig með Vonandi gengur þér vel með veikindin og verður farin að þjálfa á fullu við fyrsta tækifæri!!! Kveðja Badda
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on May 12, 2007 6:11:50 GMT -5
Takk Badda, ég held ég hafi aldrei þjálfað eins mikið og ég geri í dag, og það skilar sér að vera þokkalega meðvitaður um hversu langt ég má ganga. er farin að æfa mig á hækjum en er samt eins og barbabrella þegar ég er á þeim.. en æfingin skapar meistarann
|
|
|
Post by nickxdgbec on Dec 1, 2008 2:07:51 GMT -5
|
|