|
Post by Anna Bella on Feb 4, 2007 14:43:39 GMT -5
Jæja krakkar.... það er verið að kvarta að ég setji engar fréttir hér inn.... en má ég minna ykkur á að ég vil vil lika heyra frá ykkur? ? hvað eruð þið að gera? eruði að stefna á islandsmót um páskana eða bikarmót Icefitness? hvernig gengur ykkur með að skera niður og hvernig ganga æfingarnar? eruði kannski bara að taka líf ykkar í gegn og æfa fyrir ykkur sjálf....? vil lika vita það takk fyrir .. ekki minna áhugavert. Helga er enn á spítala og ekki útlit fyrir að hún komi heim alveg á næstunni ... ég kann þvi miður ekkert að uppfæra síðuna... þannig að það kemst ekkert inn fyrir utan hér og í gestabókina en það ætti alveg að nægja okkur í bili. Af mér er það helst að frétta að að sjálfsögðu verð ég með um páskana... læt það ekki gerast 2 í röð að ég keppi ekki onei..... æfingarnar ganga vel og matarræðið... jah.... það mætti alveg ganga betur ... en það sleppur... en það er alveg komið að þvi að það að " sleppa" er bara ekki ásættanlegt lengur! Ef þið sem ætlið að keppa eruð í sömu sporum .... þá er það bara að hrista af sér slenið og beita sig hörku... það er ekkert grín að skera niður fyrir mót... en fyrstu sætin eru fyllilega þess virði Þannig áfram með smjörið Látið nú endilega heyra í ykkur ... svo ég sé ekki ein um að skrifa hérna ... frekar einmannalegt.. og ég þarf hvatningu til að skrifa hér frá ykkur kær kveðja, ykkar einlæga Anna
|
|
|
Post by ingunn on Feb 5, 2007 9:08:23 GMT -5
Halló, halló. Mikið er nú gaman að heyra frá þér Anna Bella. Ég hef fylgst með síðunni þinni töluvert lengi en er að skrifa í fyrsta skiptið. Ég heiti Ingunn, og er vinkona hennar Sollu. Já, ég ætla að keppa í fitness um páskana, í fyrsta skiptið. Jeij, klapp á bakið fyrir mér, hehe Undirbúningurinn gengur ágætlega, mætti ganga betur með mataræðið en það gæti gengið verr. Þarf aðeins að skerpa á þessu en held mér jákvæðri og ætla ekki að gefast upp. Er búin að panta mér bikiní og bol og skó og brúnkukrem og allt að utan Ég er eiginlega alveg að springa úr spennu, eins og þið kannski getið lesið í gegnum línurnar. Jæja, ætla að drífa mig að erindast og svo í brennslu. Hlakka þvílíkt til að hitta þig Anna Bella um páskana. Vona að allt gangi vel hjá þér. Bæjós í bili. Ingunn
|
|
|
Post by Anna Bella on Feb 7, 2007 14:50:23 GMT -5
Sæl Ingunn mín og vertu hjartanlega velkomin... bæði á spjallsíðunni og ekki síður í fitnessinu Ánægð með að heyra hvað gengur vel... og matarræðið getur verið ansi mikil þraut og reynt á agann ... þolinmæðina.... andann og já ... öllu... en allt erfiðið er meira en vel þess virði .. og þegar þér finnst þú vera að gefast upp þá skaltu hringja eða kikja á Sollu... færð ekki betri manneskju... já eða mig Um að gera að nota lika síðuna eins og þú mögulega getur ... til þess er hún jæja skutla ... gangi þér sem allra ALLRA best.. og ég lakka mikið til að sjá þig um páskana... og sem flest ykkar knús.... og baráttukveðjur Anna
|
|
|
Post by badda on Feb 15, 2007 18:43:21 GMT -5
Jaa manni finnst maður ekkert hafa segja þegar maður les ykkar pistla. Ég er ein af þeim sem æfi fyrir mig og finnst það ógeðslega gaman, mataræðið hmmm það er aðeins annar handleggur Ég stefni á að taka af mér ca 8 kílóum í viðbót og ná að hlaupa 10 km (finnst fremur leiðinlegt að taka þol). Ég kíki alltaf reglulega hér á síðuna því fróðleikurinn ykkar er ómetanlegur fyrir mann og að ég tali nú ekki um hvatninguna Svo takk fyrir mig, held áfram að kíkja ef ég má Badda
|
|