|
Post by Anna on May 29, 2005 11:50:07 GMT -5
Best að setja stutta kynningu. Anna heiti ég og er 29 ára gift og á eina litla snúllu (f. 2003). Áhugi minn á líkamsrækt hefur alltaf verið til staðar og þá sértaklega með tilliti til fitnessdæmisins alls. Alltaf fylgst vel með fitness og vaxtaræktarmótum og mætt á nokkur slík til að fylgjast með.<br> Ég var í góðu formi þar til ég hóf langt og strembið háskólanám þá fór allt til fjandans og kg hlóðust utan á mig. Ég er búin að ná af mér 17 kg og á svona ca 10-13 eftir. Ég stefni að því að komast niður í 15% í fitu% og vera með nokkuð sýnileg vöðvaskil.
Ég heyp úti eftir sérstöku hlaupaprógrami 3x í viku. Stefni að því að hlaupa í Reykjavíkurmarþoninu 20. ágúst þ.e. 10 km helst undir 55 mínútum. Ég lyfti 3-4x í viku og brenni 2-3x. Hef í nokkur ár æft í hádeginu en þarf fljótlega að svissa yfir á morgnanna.
Anna Bella þessi elska, sem ég á vonandi eftir að kynnast mun betur því þarna er á ferð einstakur gullmoli þykist ég vita, var að smella á mig nettu prógrami sem ég get ekki beðið eftir að fara að æfa eftir. Takk aftur fyrir mig.
kveðja<br>Anna
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on May 29, 2005 12:26:02 GMT -5
Sæl Anna, þetta verður örugglega skemmtilegt hjá þér, ef ég þekki Önnu Bellu rétt. Mér sýnist á öllu að þú sért álíka viljasterk og hin Annan er, kannski ég þurfi bara að skipta um nafn ... hmmmmm ;D Ég vona bara að þetta borð verði þér til stuðnings og óska þér alls hins besta í stríðinu kær kveðja, Helga
|
|
|
Post by Anna Bella on May 31, 2005 10:55:58 GMT -5
Verði þér að góðu Anna mín,
Vonandi getur þú notið góðs af okkur hérna !!! Ég veit að við munum njóta góðs af þér<br> Kær kveðja Anna Bella
|
|