|
Post by Hanna Birna on Jun 12, 2005 18:22:45 GMT -5
Smá kynning um mig . Hanna Birna heiti ég verð 35 núna í næsta mánuði . Ég er gift og á 3 stelpur, 6 ,8 og 11 ára. Ég byrjaði að æfa vaxtarækt 17 ára, keppti fyrst þegar ég var 19 og svo aftur 22 ára, varð Íslandsmeistari í mínum flokki í bæði skiptin . Eftir að ég átti elstu stelpuna þá var ég inn og út af spítala í 9 ár en fyrir 2 árum fór ég aftur að æfa á fullu, losnaði við 20 kíló en bætti á mig aftur 12 kílóum ;D. Nú er ég byrjuð að æfa aftur á fullu og búin að losna við 4 kíló og 4% fitu og á eftir að losna við 8 kg og 8% til að ná markmiðinu mínu sem er að vera 59 kg og 15% fitu eftir 11 vikur . Ég hlakka mikið til að fylgjast með köttinu hjá þér Anna Bella og á örugglega eftir að nýta mér það vel.
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Jun 13, 2005 3:18:13 GMT -5
Velkomin Hanna Birna, vonandi átt þú eftir að geta nýtt þér þetta spjall, og við að þurrausa þig af þinni þekkingu ;D.
|
|
|
Post by Anna Bella on Jun 17, 2005 2:19:20 GMT -5
Sæl Hanna Birna,
Ætlaði fyrir löngu að vera búin að bjóða þér velkomna hingað og óska þér tilhamingju með þennann árangur sem þú ert búin að ná... Ég efast ekki um að þú eigir eftir að komast alla leið að takmarkinu ... og alveg örugglega með þennann glæsta ferill á bakvið þig auk okkar stelpnanna hérna sem erum á þessu borði........ ;D Endilega að leggja e-ð til málanna af þekkingu þinni eða skoðunum það er aldrei nóg af þvi hér!! hjartanlegar kveðjur Anna Bella
|
|
|
Post by runarut on Jun 20, 2005 17:24:11 GMT -5
Rúna heiti ég, verð 29 ára í haust, æfi í Laugum og búin að æfa eitthvað af viti síðan 1998 en þá voru tímamót í mínu lífi og hætti í ýmsri óhollustu og fór að stunda heilbrigðara líferni, lærði einkaþjálfun og starfaði við það í 3 ár. Ég er gift á 1 stelpu sem verður 2ja eftir nokkra daga. Stefni á að þjálfa líka minn enn meira, takmarkið er að halda mér í ca 17% (er núna tæp 20%).
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Jun 21, 2005 2:07:19 GMT -5
Velkomin Rúna, ég er vissum að við eigum eftir að fá mikinn fróðleik frá þér. Vonandi hefur þú líka gagn og gaman af þessu spjallborði.
|
|
|
Post by Anna Bella on Jun 22, 2005 3:59:19 GMT -5
Hæjjjjjjjjjjjjjjjj
Gaman að sjá þig loksins!!!!!!
komdu oft oft oft oft
kv Anna Bella
|
|