|
Hæhæ
Apr 29, 2007 8:30:42 GMT -5
Post by mariarun on Apr 29, 2007 8:30:42 GMT -5
Þá er það að kynna sig:) ..ég heiti María Rún og er 22ja ára Hvergerðingur en búsett í Reykjavík eins og er. Ég hef mikinn áhuga á öllu sem viðkemur líkamsrækt og þar af leiðandi fitness, enda er kærastinn minn á kafi í sportinu Eins og er er ég nú bara áhorfandi en það blundar þó í mér að hífa mig upp á rassgatinu og hella mér í þetta með honum.. prófa alla vega, en við sjáum hvernig það fer Anna Bella, þú ert bara snillingur!!!..gerir allt sem þú tekur þér fyrir hendur 150%..dáist að þér! Veistu, ég er ennþá að notast við lyftingaprógrammið sem ég fékk hjá þér í einkaþjálfuninni um árið, reyndar með smávegis breytingum. Ég er búin að fylgjast með þessu spjalli frá upphafi held ég, en hef af einhverjum ástæðum ekki skráð mig fyrr en nú!
|
|
|
Hæhæ
May 1, 2007 12:31:04 GMT -5
Post by Helga Audunsdottir on May 1, 2007 12:31:04 GMT -5
Velkominn, það hefur ekki verið ritað og rætt hérna á borðinu en vonandi fer þetta að lifna við kær kv. Helga
|
|