|
Árangur
Jun 24, 2005 6:48:03 GMT -5
Post by anna on Jun 24, 2005 6:48:03 GMT -5
Þið eruð svo snjallar hérna og margar hverjar með mikla reynslu á bakinu.
Ég er að velta fyrir mér hverju þið breytið ef ykkur finnst þið ekki uppskera í samræmi við það sem þið eruð að leggja á ykkur.
Ég er t.d. núna 80 kg og á að geta náð allavega 10 kg af mér. Ég er búin að hlaupa úti í 6 vikur byrjaði fyrstu vikuna á að hlaupa 13,2 km samtals og er núna komin upp í 26+ km samtals. Mæti svo þrisvar í viku á morgnana til að lyfta er á þriðju viku í prógrami sem fékk frá henni Önnu Bellu gullmola og brenni í 20 mín interval á eftir þessum þremur æfingum. Mataræðið er orðið rosa fínt. Passa vel upp á skiptingu próteina vs. kolvetna. Borða ekkert eftir kvöldmat nema prótreindrykk rétt áður en fer að sofa. Mataræðið er mjög fínt. Drekk 3-4 lítra á vatni á dag.
Tek fram að ég er búin að æfa mjög lengi ansi stíft þannig að ég er ekkert að byrja skiljiði.
Núna tekst mér bara ekki að komast undir 80 kg búin að standa í stað í 2 vikur. Síðan byrjaði er ég búin að léttast um 3 kg.
Vá ef einhver hefur nennt að lesa alla leið hingað þá er spurningin hverju mynduð þið breyta: 1) Brenna enn meira 2) enn strangara mataræði 3) Eitthvað annað
Ég finn að þetta dregur mig smá niður :-(
Afsakið vælið í mér en öll ráð vel þegin ef einhverju eru
kv. Anna
|
|
|
Árangur
Jun 24, 2005 10:13:52 GMT -5
Post by Anna Bella on Jun 24, 2005 10:13:52 GMT -5
1)Hvað æfiru oft í viku? 2)Ertu búin að taka einhverja hvild? 3)hvernig eru "frjálsu" dagarnir hjá þér? tekuru svoleiðis daga? Eru alir dagar eins hjá þér mataræðislega séð? alltaf sama magn kolvetna og próteina? svaraðu þessu krúttið mitt og ég skal skoða útfrá svörunum hvað þú getur gert kveðja Anna Bella
|
|
|
Árangur
Jun 24, 2005 11:50:54 GMT -5
Post by anna on Jun 24, 2005 11:50:54 GMT -5
:-) Þú ert nú meiri draumurinn Anna Bella.
1) Þar til í síðustu viku hef ég æft 6x í viku en síðustu tvær 7x. Reyndar ætlum við hjónin að fara að drífa okkur tvö kvöld í viku og brenna og taka skvassleik þannig að ef allt gengur upp mun ég vera að æfa 8-9x í viku næstu vikurnar. 2) ekki búin að taka neina hvíld fyrir utan einn dag í viku, sbr. að ofan. 3) Ég er ekki með neinn ákveðinn frjálsan dag en hef leyft mér meira á sunnudögum. ekki nammi, gos eða kex heldur meira í mat þ.e. kjöt með rjómasósu o.s.frv. Stundum er ég samt nokkuð stíf á sunnudögum 4) Dagarnir eru frekar svipaðir hjá mér svona kolvetnis og próteinlega séð. Rokka kannski aðeins í hitaeiningum hugsa að sé samt að jafnaði í 1200.
Ég sé mun á mér heilmikinn töluverð mótun í gangi og svona en fitan er enn svo mikil er alveg 10-13 kg of þung :-(
Takk mín kæra u rock
|
|
|
Árangur
Jun 28, 2005 3:51:26 GMT -5
Post by Helga Audunsdottir on Jun 28, 2005 3:51:26 GMT -5
hæ... ég er hef verið í sömu vandræðum, reyndar var mataræðið ekki gott þó svo ég héldi það.. en við anna bella komumst að því að það var eitthvað sem ekki gekk upp, núna neyti ég ekki kolvetnis eftir 4 á daginn, og það virðist ætla að ná upp brennslu í líkamanum. prufaðu það og rokkaðu dálítið með hversu mikið kolvetni þú tekur inn á dag til að sjokkera skrokkinn og láta hann ekki læra á hversu mikið þú innbyrgir. kv. Helga
|
|
|
Árangur
Jun 28, 2005 3:56:27 GMT -5
Post by Anna Bella on Jun 28, 2005 3:56:27 GMT -5
HÆ Anna
Þetta er rétt hjá Helgu með kolvetnin. annað........ ég held persónulega að þú sért að komast í ofþjálfun og það væri óvitlaust að taka þér frí algerlega í 1 viku. Hafðu engar áhyggjur.... það gerist ekki mikið á einni viku auk þess að þegar þú byrjar aftur þá þori ég að lofa þvi að allt fari af stað með trukki. Nú skiptir máli að vera skynsöm elskan mín og missa sig ekki í brjálæði.... taktu þér frí í eina viku, leyfðu likamanum að jafna sig smá ..hann er hreinlega að mótmæla og heldur fast í sitt! og rokkaðu með kolvetnin!!!! Mundu það að likaminn VENST ÖLLU...!!!!
kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Árangur
Jun 29, 2005 12:37:43 GMT -5
Post by anna on Jun 29, 2005 12:37:43 GMT -5
Takk fyrir svörin Helga og Anna Bella, Ég er sammála þessu með kolvetnin ég þarf að passa betur upp á þau. En heldurðu virkilega að ég sé að komast í ofþjálfun Finnst það eitthvað svo ólíklegt finnst ég ekki æfa það mikið ! :-) Ég er svolítið hrædd um að ef hvíli alveg í viku að þá detti ég úr þessum gír sem ég er komin í en ég ætla að spá aðeins í þessu og ef ekkert gerist eftir þessa viku þá tek ég pottþétt frí. kv. Anna
|
|
|
Árangur
Jun 29, 2005 18:09:22 GMT -5
Post by eythora on Jun 29, 2005 18:09:22 GMT -5
Ég er enginn sérfræðingur en er jú alltaf að læra og lesa og reyna að gera betur. Ég er sammála Önnu Bellu um að þú sért að komast í ofþjálfunargírinn. Það er ekkert endilega betra að hamast of mikið.
En þetta er líka spurning um hvernig þér líður sjálfri, ef þú ert þreytt þá er líklegt að þú sért að æfa of mikið, ég gerði þetta sjálf í vetur og var ekki að uppskera eins og mér fannst ég sá.
Ég hvíldi í eina viku og eftir það var ég komin á full swing og leið miklu betur bæði andlega og líkamlega. Þá fór ég líka að sjá aftur árangur.
Ég var eins og þú hrædd um að missa tempóið á einni viku en það gerðist ekki enda þráði ég að komast aftur og hreyfa mig. Það sem ég gerði þegar líkaminn kallaði á hreyfinguna var að fara út að labba. Leyfði mér ekkert meira en það.
Vonandi nýtist þetta þér eitthvað. Kv. E
|
|