|
Post by eythora on Jun 20, 2005 19:40:40 GMT -5
Mig langar til að læra einkaþjálfarann. Ef einhverjir einkaþjálfarar eru að lesa hérna þá þætti mér gott að fræðast um námið.
Veit að ACE námskeiðið er í ágúst og september, 4 helgar og próf í október. ER þetta virkilega nógu mikið til þess að geta tekið fólk í einkaþjálfun?
Ég er sjálfmenntuð í næringarfræði en finnst mér vantar þjálffræði, lífeðlisfræði o.s.frv. Er farið vandlega í þessi atriði á námskeiðunum?
Með hverju mælið þið? Það væri líka gaman að frétta af námskeiðum út í bæ.
Áhuginn er alla vega til staðar hjá mér en ég er efins um að það sé nóg að fara á svona stutt námskeið og vera þannig komin með réttindin. 'Eg þarf sem sagt að láta sannfæra mig.
Hlakka til að heyra frá ykkur. kv. EYþóra
|
|
|
Post by kolla on Jun 21, 2005 6:11:55 GMT -5
Hæ, sjálf fór ég á svona ACE námskeið og mér fannst það mjög skemtilegt. Reyndar hefði það alveg mátt vera lengur því þetta er svo fróðlegt efni. Spurning um hvort það sé nóg 4 helgar? 'Eg held að reynslan skipti mjög miklu máli í þessu. Það eru margir mjög góðir einkaþjálfarar sem hafa ekki tekið nein einkaþjálfarapróf en eru aftur á móti duglegir að lesa sig til og hafa alveg tileinkað sér þessu. Ég hef heyrt líka að einkaþjálfaraskólinn í World Class sé mjög góður. En þá er farið mjög vel í verklega hlutann. Hann er alltaf kenndur á kvöldin frá eitthvað hálf 5 til 9 alla daga nema föstudaga og svo alla laugardaga Námskeiðið er held ég í 8 vikur. Man ekki alveg. En eitt að lokum, geturu ekki tekið kúrsa í HÍ í lífeðlisfræði og því. Ég held að það ætti alveg að vera hægt. vonandi hjálpar þetta eitthvað. Kv Kolla
|
|
|
Post by eythora on Jun 21, 2005 8:14:10 GMT -5
Já ég ætla að tékka á þessu í World Class. Annars er alltaf möguleiki að skrá sig í Kennaraháskólann og læra íþróttafræðinginn, mér finnst það bara ekki nógu heillandi þar sem þeir einblína á að maður verði kennari í grunn- og framhaldsskólum. Síðan er það kennt á Laugarvatni sem er ekki alveg nógu gott þegar maður er í fullri vinnu sem maður vill ekki hætta í.
Jæja nóg um það, reynslan skiptir auðvitað mjög miklu og er ég t.d. búin að mennta mig ansi mikið í næringarfræði bara með því að lesa og lesa og lesa og lesa og lesa og mynda mér mínar eigin skoðanir í gegnum allt sem ég hef lesið. Sama um æfingarnar, fór m.a. til einkaþjálfara og lærði mikið af því. ER að gera alls konar tilraunir með sjálfa mig eins og gengur. En maður lærir líka ótrúleg mikið af því að lesa sig til sjálfur. Hins vegar er gott að fá smá feetback t.d. með því að fara á námskeið o.s.frv.
Hætt að sinni, er með algjöra munnræpu. Kær kveðja Eyþóra
|
|