|
Post by Helga Audunsdottir on Jun 2, 2005 2:17:46 GMT -5
dagbækurnar ykkar, hafið þið matar og æfingadagbókina saman, eða eru þið með sitt hvora ? hverskonar bækur notið þið ? Venjulegar dagbækur eða eitthvað form sem þið prentið sjálfar út ?<br> Ein voða forvitin, xoxooxooxo Helga
|
|
|
Post by anna on Jun 2, 2005 10:03:29 GMT -5
Sko ég er svona skrifóð týpa :-) Skrái allt niður. Ég er með litla frekar þykka rúðustrikaða bók sem ég skrifa í hvað ég borða yfir daginn það er svona frekar nákvæmt samt ekki alveg eins nákvæmt og ætti að vera. Æfingar yfir daginn rata líka á þessar blaðsíður ca ein bls fyrir hvern dag. Síðan er ég með lyftingarprógröm útprentuð og skrái þyngdir, sett og hvort var erfitt eður ei á það.<br> Á hlaupaprógramið mitt skrái ég vegalengd, tíma og hversu erfitt var að hlaupa vegalengdina. Önnur brennsla fer í litlu stílabókina. Mér finnst þetta hjálpa mér mjög mikið. Ég set markmiðin mín þarna inn og skrái hvað ætla að gera í hverri viku og þannig að það blasir við mér um leið og ég opna bókina að morgni. Gott líka að sjá hvað maður var að gera og hvort það virkaði o.s.frv. kv. Anna E.S. mér er farið að líða smá illa það er eins og maður sé að einoka spjallið hérna vona að ég fæli ekki alla hina áhugasömu frá
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Jun 2, 2005 13:29:35 GMT -5
enginn hætta að þú sért ein á línunni... en mér finnst þetta frábært að heyra hverning þú setur þetta niður, ég er að berjast með matardagbókina... hmmm (við skulum vona að Anna Bella heyri þetta ekki) Enn hún heldur utan um æfingarnar, en ég hef ekki haft mig í að skrá niður brennsluna. En ég ætti að gera það til að hafa þetta alveg á hreinu. hversu langt og hvað mikið á þeim dögum sem ég nota brennvery *friendly* personæki. Takk fyrir upplýsingarnar þínar þær koma sko að góðum notum fyrir svona byrjanda eins og mig xoxooxoxox Helga
|
|
|
Post by sibba on Jun 7, 2005 13:22:26 GMT -5
Já það er sniðugt að vera með svona bók þarf að fá mér svona kveðja Sibba
|
|