|
Post by Helga Audunsdottir on Sept 5, 2005 15:05:14 GMT -5
|
|
|
Post by Anna Bella on Sept 11, 2005 13:25:15 GMT -5
Elsku elsku Hidda mín!
Veistu það elsku hjartans stelpa mín að f Fitness væri auðvelt þá væru fleiri í þessu og ef að fitness væri ekkert mál þá væri ekki keppt í þessu. Við sem höfum keppt vitum nákvæmlega hvað þú ert að tala um og okkur myndi aldrei nokkurn timan detta það í hug að gera lítið úr tilraunum þinum! Heldur hrósa þér fyrir að haf reynt vegna þess að þú skalt alls ekki vanmeta alla þá kunnáttu og þann lærdóm sem dróst úr þessu. Þetta eru gífurlega upplýsingar sem þú ert búin að viða að þér í gegnum þessa tilraun og gera þær þig bara að enn tilbúnari og sterkari fyrir næstu þraut... hver svo sem hún kann að vera. Það góða við fitness er að þú lærir mjög mikið á sjálfa þig, þínar takmarkanir þínir veikleikar og hvar þinn styrkleiki liggur. Hvort sem það er í þessu sporti eða öðru, sem móðir og eiginkona ( sem er stærsta og göfugasta hlutverkið ), sem vinur, dóttir, starfsmaður og sem manneskja. Elsku Hidda mín, ég les það í skrifum mínum að þú ákvaðst að forgangsraða og þú gerðir það vel! Móðir á að hlúa að barni sínu... eiginkona á að hlúa að maka sinum og svona get ég lengi talið... Þó þú farir ekki í fitness núna þá getur það gerst seinna þegar litlli greifinn þinn er orðinn stærri og getur stutt þig eins og dóttir mín gerir hjá mér en hún var 11 þegar ég byrjaði. Kannski ferðu aldrei í Fitness! En hver segir að fitness sé merki um ´getu þina til einhvers? Ég dái mest fólk sem mætir reglulega í likamsrækt og er með hollar matarvenjur sjálfs sins vegna en ekki vegna þess að það er að fara að keppa! Þess vegna get ég sagt við þig elsku Hidda mín án þess að roðna að ég er mjög stolt af þér! Stolt af þvi að þú skulir hafa verið það mikil og sönn að forgangsraða!
kær kveðja þín einlæga Anna Bella
|
|