|
Post by badda on Sept 11, 2005 15:16:54 GMT -5
Takið einhvern fisk (t.d. ýsu) og bútið niður í passlegar stærðir. Kryddið með uppáhaldskryddi og skellið honum augnablik í mínútugrill (til að fá fallegar rendur). Sjóðið hýðishrísgrjón. Blandið saman létt kotasælu og undanrennu og karrýi og hrærið saman við hrísgrjónin. Brytjið papriku og annað grænmeti (einnig gott að setja steikta eggjahvítu) og blandið saman við hrísgrjónablönduna. Setjið svo blönduna í eldfast mót og fiskinn þar ofan í og setjið inn í 180° heitan ofn í ca 10 mínútur. Einnig gott að setja ost yfir obb obb obb Bon appetit Badda ;D
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Sept 12, 2005 14:34:58 GMT -5
Mér líst vel á þennan rétt.. er alltaf að reyna að gera eitthvað annað en sjóða ´ann kv. Helga
|
|