|
Post by gunnsa on Jan 15, 2006 16:15:22 GMT -5
Hæhæ, mig langar svo að setja uppáhaldsfiskinn minn hérna inn...þetta er rosalega ,,frjáls uppskrift", þið getið notað hvaða fisk og hvaða grænmeti sem þið viljið. Uppáhaldið mitt er samt lax eða bleikja, eða bara venjuleg ýsa Þið þurfið eldfast mót til þess að framkvæma þetta. Mjög einföld uppskrift og frábær kvöldmatur Fyrir 3. 1 helst ferskt fiskflak (með roði ef það er lax eða bleikja) skorið í jafna bita. Gerið ráð fyrir 2 bitum á mann. 1/4 kúrbítur 1/2 sæt kartafla (þessar stóru, appelsínugulu) 1 paprika, er hrifnust af gulri. 3-4 stórar gulrætur. 1/4 broccolí haus. Mér finnst allavega þetta grænmeti best í uppskriftinni. Takið grænmetið, rífið broccolíið niður í bita og skerið kúrbítinn, kartöfluna, paprikuna og gulræturnar niður í þykkar ræmur. Dreifið öllu grænmetinu í eldfast mót og skvettið smá ólívuolíu yfir. Kryddið fiskbitana aðeins að eigin vali (nota yfirleitt bara salt+pipar) og raðið þeim snyrtilega ofan á allt grænmetið. Forhitið ofninn í 170°og stingið svo góðgætinu inn, eldið í 10-15 mínútur. Berið fram með jafnvel kartöflum eða hrísgrjónum. Ef þið viljið vera súperholl finnst mér bankabygg sem fæst í heilsubúðunum ótrúlega gott, betra en hrísgrjón ;D Njótið vel Kveðja, Gunnhildur
|
|
|
Post by gunnsa on Jan 16, 2006 4:18:52 GMT -5
úff nú hefði getað orðið stórslys Ég gleymdi að segja ,,steikið fiskinn á pönnu áður en hann fer á eldfasta mótið og inn í ofn með grænmetinu!" Úps...my mistake. Notið pamspray eða ólívuolíu;D Njótið vel. Kveðja, Gunnhildur.
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Feb 28, 2006 8:40:04 GMT -5
sýðuru grænmetið líka áður
|
|
|
Post by gunnsa on Mar 8, 2006 5:52:23 GMT -5
Nei, ef eitthvað er þá forsteiki ég það kannski á pönnu:)
|
|