Post by gunnsa on Dec 20, 2005 17:55:15 GMT -5
Fitness og heilbrigði !
Oft hef ég verið spurður og einnig hef ég fylgst með umræðunni á milli fólks á líkamræktastöðvum um hvort fitness sé holl íþrótt eða ekki. Einnig veltir fólk sér mikið upp úr líferni og heilbrigði þess fólks sem leggur þessa ótrúlegu vinnu á sig aðeins til þess að keppa. Þess vegna langar mig að fjalla aðeins um þessa umdeildu umræðu og taka fyrir ýmsa kosti og galla í fitness.
Helstu spurningar sem ég fæ og heyri fólk spyrja: Er fitness nú ekki óholt vegna öfganna sem sumir keppendur leggja á sig? Það má kannski fyrst og fremst segja að allar keppnisíþróttir séu óhollar að vissu leyti hvort sem það er fitness, fótbolti eða aðrar keppnis íþróttir því jú keppnisskap keppanda getur oft verið mikið þar sem fólk æfir alveg frá 6-15 sinnum í viku og borðar strangt og einhæft matarræði. Höfum við ekki samt líka gott af því að ýta líkama og sál okkar aðeins lengra og uppskera meira en maður hefur gert?
Er þetta ekki tímafrekt og ófjölskylduvænt? Vissulega er þetta mjög tímafrekt en þá kemur til eitthvað sem maður kallar að skipuleggja sig og búa til tíma til æfinga. T.d. er hægt að fara aðeins fyrr að sofa og vakna snemma til að æfa o.þ.h. Ófjölskylduvænt? Ég sé þetta meira fjölskylduvænna en hitt því besta leiðin til að kenna börnunum okkar og fjölskyldu er að sýna það með fordæmi og atgervi í okkar lífi. Hvaða barn vill ekki vera eins og mamma eða pabbi og hvaða skilaboð sendum við þeim með að vera alltaf í góðu formi?
Er hollt að fara svona neðarlega í fituprósentu? Þetta er sennilega algengasta spurningin sem ég fæ og svara ég henni þannig: Hvort er betra að vera í góðu formi (fitnesskeppendur eru yfirleitt á keppnisdegi ca 5 %) eða að vera vera 20 kílóum of þungur? Nákvæmlega, ég hélt það !
Er ekki matarræðið óhollt í raun og veru? Þetta er sennilega skrítnasta spurning sem ég heyri! Ef fiskur, kjúklingur, kartöflur, hrísgrjón, ávextir, grænmeti o.þ.h. matur er óhollur þá veit ég ekki hvað er hollur matur. En svo eru líka vangaveltur um hvort við fáum næg vítamín, steinefni og fitu þegar maður er á svona matarræði. Vissulega er nokkuð til í því en þeir sem kunna inn á matarræðið borða vítamín, steinefni og lýsi eða öðruvísi góða fitu og það ættu í raun allir að gera allt árið um kring!
Hvað er það sem fitness gerir og kennir þér (þá á ég ekki endilega við bara mótið heldur meira undirbúninginn og allt í kring um það)? Segjum svo að þú sért að fara í gegnum þetta og hefur aldrei keppt, í þessu ferli þarft þú að skera alla fitu í burtu, leggja allar æfingarnar á þig, keppa og gera þetta allt saman 100%. Þetta er ótrúlega lærdómsrík lífsreynsla. Þú lærir inn á matarræði sem er langstærsti hluturinn af þessu sem þú tekur með þér um ókomna tíð, lærir að neita þér um ýmsa hluti sem eru þér ekki endilega hollir, þú kynnist líkama þínum og lærir á hann af þeim skilningi að engin getur ímyndað sér það nema að ganga í gegnum þetta sjálf/ur. Sjálfsvirðingin og sjálfstraustið eykst um mörg hundruð prósent og þar af leiðandi verður andlega heilsan þín mikið betri með miklu meira jafnvægi en áður. Þú lærir að setja þér markmið og ná þeim í hverju sem þú tekur þér fyrir hendur, lærir að gagnrýna sjálfan þig og taka við gagnrýni og svo mun þér líða miklu betur með hvernig þú lítur út.
Eftir að fitness kom til landsins og þegar það byrjaði að fá þá athygli sem það verðskuldar hefur orðið ótrúleg vakning hér á landi hjá almenningi til að vilja að vera í betra formi. Samhliða því hefur auðvitað verið mikil þróun í vísindum á ýmsum fæðubótarefnum og aukin vitneskja á matarræði okkar sem hjálpa okkur að ná enn meiri árangri í því sem við erum að gera. En til að koma þessum skilaboðum til almennings hafur fitnessfólk á borð við Kristján Ársælsson og fleira gott fólk lagt sitt að mörkum og sýnir það best í gegnum Icefitness!
Það besta við fitness er að allir geta farið og keppt svo lengi sem það er tilbúið að leggja vinnuna á sig!
Sævar “speedy” Borgarsson.
Tekið af Icefitness.is/aðsendar greinar/fitness og heilbrigði
Njótið vel,
Kveðja Gunnhildur