Anna BELLA MARKSDTTIR
Guest
|
Post by Anna BELLA MARKSDTTIR on Nov 8, 2006 6:34:50 GMT -5
halló Hvað segiði þá? Loks er bikarmótið afstaðið og ég verð hreinlega að viðurkenna að þetta er með skemmtilegri mótum sem ég hef tekið þátt í! Bæði vegna hvað allt gekk hratt og snuðrulaust fyrir sig en lika vegna fyrirkomulagsins! þetta að skipta niður í hæðarflokka og láta sigurvegaranna keppa sín á milli fannst mér vera hápunkturinn! og ég vona að þeir komi til með að hafa þetta fyrirkomulag aftur!!!! Margir hafa hringt í mig, sent mér póst og sms til að tjá skoðun sina á þvi að Freyja hafi unnið en ekki ég og að það sé dómaraskandall! Ég þakka ykkur sem finnst að ég hefði átt að vinna hjartanlega fyrir... en staðreyndin er samt sem áður sú.... að við áttum báðar skilið að vinna! Mér finnst ekki að ég hafi tapað... þetta var bara hennar dagur!Og ég vil nota tækifærið og óska henni hjartanlega til hamingju með sigurinn. ANNAÐ!!! hvað er málið stelpur OG strákar með pósurnar ykkar? ? Mér fannst synd að horfa á sumar ykkar sem voruð að keppa og voruð í þrusuformi ... eyðileggja allt með slæmar pósur! Þið megið aldrei vanmeta pósurnar!!!! Það er skylda að æfa þær minnst 30 min á dag síðasta mánuðinn í það minnsta! ef þið eruð óörugg með þær .... leytið til einhvers sem er góður í pósum eða sem þið treystið til að kenna ykkur..... þið verðið að hafa fyrir þessu... þetta er ekki síður mikilvægt og æfingarnar og matarræðið! en í Guðanna bænum EKKI fara að æfa ykkur 10 mín áður en þið farið á svið..... ÞAÐ ER OF SEINT! jæja ... þangað til næst knús Anna Bella
|
|
|
Post by gunnsa on Nov 8, 2006 11:04:37 GMT -5
haha en fyndið:)við skrifuðum báðar um þetta mót nánast á sömu mínútunni:) En já til hamingju með 2. sætið Anna mín, mér fannst Freyja líka vel að sigrinum komin en auðvitað langaði mig til að þú myndir vinna. Sammála því að þetta hafi verið skemmtilegt mót þó svo að ég hafi ekki mikinn samanburð við það Ég ætla líka klárlega að æfa mig betur í pósum næst, takk fyrir hjálpina núna. Á örugglega eftir að leita til þín aftur fyrir næsta mót. Kær kveðja Gunnhildur
|
|
|
Post by nickxdgbec on Dec 1, 2008 2:10:26 GMT -5
|
|