|
Ég er ?
May 28, 2005 19:33:42 GMT -5
Post by Helga Audunsdottir on May 28, 2005 19:33:42 GMT -5
Helga heiti ég og er svona aðstoðar maður við hliðina Önnu Bellu meðan hún er að átta sig á þessum hliðum á netheiminum. Ég er 44 ára 5 barna móðir hér á Selfossi og lenti fyrir slysni í einkaþjálfun hjá Önnu Bellu, sko ég ætlaði ekki að stíga fæt inn í líkamsræktarstöðvar, var búin að fá mig full sadda. En að læknisráði var ég send eina ferðinna enn í sjúkraþjálfun, en á þessari stöð er Anna Bella að vinna. Svo ég fór að gjóa augunum á hana þegar hún var að vinna og smá saman langaði mig til að gera eitthvað annað en að bara sitja í tækjunum og kunna varla á það sem ég var að gera. Enda mikill maníu manneskja og sá fram á að það væri ódýrar að tala við hana en að fara á Heilsuhælið eða Reykjalund. Því rek litla kertagerð hér og hef ekki tíma til að vera frá henni í langan tíma. Svo ég hef verið meira eða minna undir handleiðslu Önnu Bellu síðasliðna 7 mánuði, og í fyrsta sinn í mörg ár get ég sagt og meint það að mér LÍÐUR ÆÐISLEGA VEL, og á eftir að verða enn betri xoxoxooxox Helga
|
|
|
Post by nickxdgbec on Dec 1, 2008 2:09:34 GMT -5
|
|