|
Post by Anna Bella on May 28, 2005 17:22:59 GMT -5
11 Júni mun ég byrja að kötta fyrir HM sem verður á Spáni í lok september. Ég mun setja hér inn daglega matarprógrammið mitt, æfingar og jafnvel mælingar .... þannig munuð þið geta fylgst nákvæmlega með hvað ég geri, hvernig mér gengur og jafnvel nýtt það ykkur til góða.
|
|
|
Post by anna on May 29, 2005 17:00:41 GMT -5
FRÁBÆRT. Ég get ekki beðið nú fer ég að telja niður í 11. júní :-)
Gangi þér vel nafna.
kv. Anna
|
|
|
Post by kolla on May 30, 2005 16:08:36 GMT -5
Gangi þér vel snúlla ;D ég er núna eins og þú veist að byrja á fullu þannig að það verður gott að fá einhverjar uppskriftir og svoleiðis!
kv. Kolla
|
|
|
Post by eythora on Jun 3, 2005 12:52:49 GMT -5
Hvernig undirbýrðu þig andlega undir köttið? Í þessari viku hef ég verið í mjög ströngu mataræði hjá þjálfarnum mínum og ég þurfti að undirbúa mig mjög vel undir það. <br> Mér finnst þetta rosalega erfitt, mæla hverja einustu örðu sem ég borða og hugsa um að borða klukkan þetta o.s.frv.
Ganga framhjá öllum freistingunum sem finna má hér og þar í vinnunni.
Ég dáist að ykkur, get ekki sagt annað. <br>Kv. Eyþóra
|
|
|
Post by Hidda123 on Jun 9, 2005 3:35:41 GMT -5
Hæ Anna þið þið hinar .. það er alveg frábært að þú ætlar að deila þessu með okkur það er vel þegið og ég yrði mjög þakklát fyrir það ,manni veitir víst ekki af hjálp og ráðum í þessu öllu og þú ert alveg indisleg að opna fyrir þetta Anna Bella ,það er búið að vera rosalega erfitt að fá ráð og hjálp(í þessum heimi ) en þú bara komst braust allar brýr með þessu framtaki þínu og átt heiður skilið. Nóg væl ... Hlakka til að sjá hvernig þú cottar og undirbýrð þig fyrir mót.. Bæjó kv Hidda
|
|