|
Post by Anna Bella on Jun 10, 2005 8:01:24 GMT -5
Jæja ..... þá er stóri dagurinn að renna upp. Ég var spurð að þvi hvernig ég undirbý mig andlega fyrir kött og svarið er eiginlega sorglega einfalt... í 1-2 vikur áður en hið eiginlega "kött" byrjar .. byrja ég að kötta. Ég byrja samt ekki strax að vigta oní mig eða neitt svoleiðis heldur hreinsa til í matarræðinu og ven mig af "slæmum siðum". Það sem gerist iðulega hjá mér "offseason" er eftirfarandi 1) Ég hætti að brenna 2) ég borða ekki eins reglulega 3) Ég er rosalegur snarlari 4) Ég minnka rosalega vatnsdrykkjuna Ekkert af þessu er sniðugt að gera en einhverra hluta vegna þá lendi ég alltaf í þessu... þar afleiðandi nota ég fyrstu daganna til þess að koma þessu öllu inn í prógrammið aftur. á hinn veginn hef ég samt ekki haft voðalegar áhyggjur af þessu þar sem "offseason" tímabilið hjá mér er orðið svo stutt. En...... á mánudagskvöld mun ég setja inn fyrsta daginn og reyna að setja inn daglega. Ykkur er velkomið að koma með hverskonar innlegg, ráðleggingar og spurningar. Munið samt að það sem hentar mér og minum likama þarf EKKI að henta ykkur endilega...og ekki gert ráð fyrir að svo sé. Þið getið fengið hugmyndir ... þið getið reynt að fara eftir þvi sem ég geri.... en....... munið... Þetta er EKKI trygging fyrir að það gangi upp hjá ykkur!!!!!! OK? ? kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by anna on Jun 10, 2005 11:27:41 GMT -5
Ég get ekki beðið og ég meina það var farin að gjóa augunum á dagtalið ansi reglulega bara svona til að fullvissa mig að 11. júní væri að renna upp.
Mér finnst gríðarlega spennandi að fá að fylgjast svona með þér.
Ein spurning sem mig langar að kasta fram af því þú varst spurð hvernig þú undirbýrð þig andlega fyrir kött. Þá langar mig að spyrja hvað gerir þú eða þið þegar þið veikist í kannski 2-5 daga og systemið fer í rugl gengur ekkert illa að halda andlegu hliðinni uppi varðandi líkamsræktina og mataræðið ?
kv. Anna
|
|
|
Post by Anna Bella on Jun 10, 2005 12:04:30 GMT -5
Sæl Anna mín, Þú spurðir: hvað gerir þú eða þið þegar þið veikist í kannski 2-5 daga og systemið fer í rugl gengur ekkert illa að halda andlegu hliðinni uppi varðandi líkamsræktina og mataræðið ?Það sem ég geri eða þarf að gera þegar ég lendi í þessum kringumstæðum sem þú nefnir hér að ofan er tvennt 1) Passa að drekka nóg vatn 2) vera lág í kolvetnum og þá takmarka ég það algerlega við 50gr á dag meðan veikindi standa yfir... kolvetnin eru nauðsynleg til að halda sönsun og lika til að hafa orku til að láta sér batna... líkaminn getur voðalega lítið gert ef hann er orkulaus ekki satt? Til að halda andlgu hliðina þá er einfaldlega að skrifa niður hvert þú ert að stefna og lesa það nógu oft.. það er ekki auðvelt en þess virði... Hugleiðing vikunar að þessu sinni verður eftirlætisljóðið mitt sem mjög gott er að prenta út og lesa undir erfiðum kringumstæðum. Vonandi svrar þetta spurningu þinni að þessu sinni.. takk fyrir að spyrja og fyrir að vera vakandi kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Jun 10, 2005 20:12:42 GMT -5
Jæja stelpa, þá er cutið að renna upp. Satt að segja er mér farið að hlakka til að sjá breytinguna sem verður á þér á fyrstu vikunum, Það er ótrúlegt hvað það gefur mikla innspýtingu fyrir okkur hin að sjá að þetta er hægt. Mínar bestu óskir um gott gengi í þessu, og þú veist af því að við stöndum við bakið á þér Sjáumst hressar í síðasta lagi á mánudaginn xoxoxoxoxoxo
|
|
|
Post by kolla on Jun 11, 2005 4:11:54 GMT -5
Hallóóó og gangi þér nú ýkt vel í þessu öllu saman. Ég hef aldrei skilið svona vigtunardæmi. Hvernig reiknar þú 50 gr af kolvetnum og þannig. Hvað er lítil jógúrt ef þú ætlaðir að fá þér þannig og hvað þyrftiru að hafa með t.d ef þú ætlaðir að fá þér þannig sem máltið!! hmmm myndiru kanski ekki borða jógúrt á niðurskurðtímabili.. ég ekki alveg nógu reynd sko en jæja...kv. Kolla
|
|
|
Post by sibba on Jun 11, 2005 14:45:43 GMT -5
já það verður gaman að fylgjast með (er en að reyna að átta mig á þessari síðu!! kann ekkert á þetta
|
|
|
Post by Anna Bella on Jun 11, 2005 16:42:25 GMT -5
Hæ
Ég nota forrit til þess að hjálpa mér að finna út hvað ég þarf mikið af hverju.. personulega nota ég abet.is sem mér finnst vera mjög þægilegt og nægir mér.. reyndar er ekki búið að uppfæra það í einhver ár þannig að það er orðið erfitt að finna allt sem maður fær sér dags daglega. Annars er reyndar lika hægt að setja sjálfurþar inn ef maður kemur með nýja vöru. Ef þú ert með jógúrt þá er bara að reikna ... það stendur alltaf hvað er í 100gr þá er bara að deila þeiri tölu með innhaldi til að fá útkomuna.... En nei ég borða ekki jógúrt á niðurskurðstímabili nema ég lendi í þannig aðstæðum að geta ekki annað. kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Jun 13, 2005 3:56:37 GMT -5
Aha.. hef oft verið að spá í hvernig þetta prógram funkerar.. og fann það út rétt í þessu.. líst vel á nota mér þetta dæmi
|
|