|
Post by kolla on Jun 12, 2005 7:15:51 GMT -5
horfði á Arnold Classic mótið á sýn í gær. Vá hvað konurnar eru ótrúlega skipulagðar og flottar. Og þegar hjalti spurði þær hvort þær borðuðu big mac þá var bara svarað.."ég borða ekki skyndibita mat" og sumar ekki búnar að gera það í mörg ár!!! það yrði mjööög persónulegur sigur fyrir mig ef ég myndi ekki borða svoleiðis í mánuð... hmmm eitthvað sem mun lagast á komandi mánuðum ;D EN það sem mér fannst magnað var að þegar var spurt um æfingar þá sögðu þær lyfta á hverjum degi í 45 mín. En svo alveg Cardio upp í 2 klukkutíma á dag. Er Cardioið svona rosalega mikill partur af þessu öllu saman??? Ég hélt alltaf að lyftingarnar skiptu svo rooosalegu miklu máli. En jæja vildi bara eitthvað blaðra hérna, fannst ótrúlega gaman að horfa á þetta og seinni hluti verður sýndur á fimtudag. Um að gera að horfa kv. Kolla
|
|
|
Post by Anna Bella on Jun 12, 2005 9:24:27 GMT -5
Þegar þú undirbyrð mót skiptir brennsla jafnmiklu máli ef ekki meira en lyftingar! munurinn á on og offseason er einmitt þessi .. að fara úr max 1 1/2 - 2 tima æfingar á dag yfir í 3- 4 tima á dag en það gerist smátt og smátt þegar nær dregur mót.
kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by anna on Jun 12, 2005 16:39:07 GMT -5
Tek undir með þér Kolla þetta var skemmtilegt sjónvarpsefni. Þessar gellur eru sko pro það er ekki hægt að segja annað :-) Aðdáun mín á fólki sem hefur aga, vilja og getu til að ná árangri á þessu sviði er takmarkalaus.
Anna Bella gangi þér vel ;-)
kv. Anna
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Jun 13, 2005 3:23:03 GMT -5
ohhh.. ég hefði viljað vita af þessu, er með hundruði sjónvarps rása sem ég horfi eigilega aldrei á en þetta efni vildi ég gjarnan sjá næst þegar mót er sýnt endilega skellið því á borðið hvenær það fer fram, þá get ég lagst í leit Vitið þið af hvaða stöð Sýn fékk þetta efni?
|
|