|
Post by Anna Bella on Jun 22, 2005 4:20:29 GMT -5
Jæja............ Ég var allan gærdaginn í bænum í brúðkaupsstússi og þetta er dagurinn í hnotskurn... er ekkialveg með tímasetningunni á hreinu en það er á ca 3 tima fresti hámark 05:30 Brennsla (þökk sé Helgu )07:00 40 gr hafragraut og protein 10:00 AST vyo pro ( rosagottt að vera með soleiðis alltaf innann handar ) 12:20 Subway kjúkling 15:00 epli 19:30 Nings hrisgrjónanúðlurBIO............ og með þviFór í prufuförðun fyrir brúðkaupið og var svo fííííín að ég hreinlega sagði kallinum að það væri ekki að ræða það að ég væri svo "hooked" í sportinu að ég færi að æfa svona fín eða tæki förðunina strax af til að geta æft!!! þannig að við fórum á Nings og bio sem er e-ð sem við hjónin ( tilvonandi ) höfum ekki gert í meira en ár og krakkar ....... Ég er mjöööög ánægð með það. Það er nauðsynlegt í þessu sporti að muna að að þú eigir fjölskyldu... vini og vissar skyldur gagnvart þeim... skyldan liggur ekki í að sukka heldur að vera með matarræðið svo á hreinu og æfingarnar að þegar svona gerist að þú getir leyft þér það með góðu. Annars springið þið eða eyðileggið samband ykkar við ykkar nánustu , hatið jafnvel íþróttina og verðið þunglynd. EN NOTABENE......... þetta má aðeins gerast við einstök tækifæri.... sem er afar sjaldan!!!! kær kveðja Anna
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Jun 22, 2005 11:35:44 GMT -5
Jamm..eins og ég segi og vil meina að það eigi að vera líf fyrir utan hugsunarinnar að fara á mót. Enda átt þú eftir að lifa á þessari stund lengi vel. Svona stundir ylja um hjartaræturnar þegar móti blæs. Ég er svo innilega ánægð fyrir þína hönd að þú skildir njóta þess að eiga stund með fjölskyldunni .. sjáumst í næsta stríði.. kl 5 á morgun elska þig líka xoxoxooxxo
|
|
|
Post by Anna Bella on Jun 24, 2005 6:27:55 GMT -5
23 Júní 2005
05:00 50 min brennsla - 140 púls
06:30 40gr haframjöl+protein 08:00 Axlir- kálfar- innann og utanlæri + kviður 09:30 115gr kjúkling 12:30 7 eggjahvítur + grænmeti 15:00 120 gr kjúkling 17:50 120gr kjúkling 22:00 45 mín brennsla 23:30 protein Lúlla
|
|
elly
Ungliði
Posts: 6
|
Post by elly on Jun 25, 2005 16:47:57 GMT -5
oh rosalega er gaman að fá að fylgjast svona með þér Anna Bella TAKK fyrir að leyfa okkur það.... þú ert svo yndisleg
|
|
|
Post by Anna Bella on Jun 28, 2005 3:50:38 GMT -5
27 Júní 2005
Jæja ... þar sem að helgin öll var ansi skrautleg þá þarf ég að herða róðurinn í rúma viku eða svo til þess að ná aftur forskoti. Til þess að gera það ætla ég að vera einstaklega lág í kolvetnum í nokkra daga auk þess að brenna extra vel. Nota Bene... ég geri þetta eingöngu vegna þess að ég tek mér frí í kringum brúðkaupið og þá verða aðeins 8 vikur í mót þegar ég kem úr brúðkaupsferðinni og þessvegna er alveg nauðsynlegt fyrir mig að halda áætlun... Ég mæli annars alls ekki með svona mikilli hörku eins og ég er að fara að gera næstu daga. En hér kemur þetta
07:30 50 min brennsla 09:30 Myoplex lite 12:00 110gr kj.bringa+ broccoli 13:00 þungar fætur 15:00 120gr kjúklingabringa 17:30 7 eggjahvítur 22:00 50 min brennsla 23:10 protein Lúlla
Eins og þið sjáið hér er kolvetnainntakan í heinu lágmarki.
kveðja Anna
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Aug 27, 2005 11:37:20 GMT -5
hæ dúlla, ertu alveg að gera útaf við þig Mér er farið að langa til að sjá þig skrifa pínulítið hér inn, þó ekki væri nema til að sjá að allt væri í lagi, góðar fréttir eru betri en engar fréttir, xoxoxooxoxox
|
|
|
Post by badda on Sept 6, 2005 11:29:37 GMT -5
Hæ hæ Loksins get ég tekið þátt, það er ofboðslega gaman en mig langar svoooo mikið að spyrja nokkurra spurninga. hef lesið hér inn á síðunni mikið um að rokka með kolvetnin - hmm hvað er þá verið að ræða um? Einnig var ég að velta fyrir mér hvað ykkur finnst um skyr.is drykkina (þessa m. sætuefnunum). Las um daginn í fréttablaðinu viðtal við Sif Garðars sem hefur verið að keppa í fitness, þar var hún að gefa upp matseðil sem hún segir að fitnesskeppendur noti í niðurskurði. Hún var þar með brauðbollur úr spelti, án hveitis, gers og sykurs - hafið þið eitthvað verið með þær, eigið þið uppskriftir? Elska nefnilega brauð og helst mikið af því . Jæja jæja nóg í bili hlakka til að heyra í ykkur Kveðja Badda
|
|
|
Post by Anna Bella on Sept 11, 2005 12:51:29 GMT -5
sæl Badda mín,
Þegar verið er að tala um að rokka með kolvetnin þá er verið að meina að borða ALLS EKKI það sama dag eftir dag. Stundum er gott að vera með 2-3 daga þar sem þú borðar ekki mjög mikið af kolvetnum og þá er gott að miða við að fara helst ekki niður fyrir 25gr og svo er gott að taka dag og dag þar sem þú færð þér meiri kolvetni ogþá erum við að tala um 125+ . Er þetta samt ekki heilög heldur til viðmiðunar. Aðalmálið er að rokka þannig að likaminn getur aldrrei aðlagað sig að þinum matarvenjum og þarf alltaf að giska og þar af leiðandi staðnar þú ekki. Ég sá viðtalið við hana Sif og ber ég mikla virðingu fyrir henni EN.... ég var alls ekki sammála þvi sem hún sagðiog lenti ég í stökustu vandræðum með konur sem sáu þarna svarið við þvi hvernig hægt væri að losna við 6kg á einni viku. ÞAÐ ER EKKI HÆGT!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Annað... það hvernig fólk undirbýr sig fyrir mót er eins misjafnt og við erum mörg. Ég td borða alls ekki brauð þegar ég undirbý mót. og ekki einu sinni kryddaðan mat heldur nota eingöngu krydd frá pottagöldrum!!!! En það eru til mjög margar aðferðir og hver og einn er víst skyldugur til að finna hvað virkar fyrir sig . EN .. aftur kem ég að þvi að a) það er EKKI til töfralausn! b) þetta krefst mikillar vinnu c) Engar afsakanir eru gildar! RÁDDU framúr þeim d) komdu fram við likamann eins og sjálfstæðan einstakling sem hefur sinar upp og niðursveiflur sem þú verður að sætta þig við. e) sumir fá sér parkodin við höfuðverk en aðrir fá sér parasetamol af þvi "það virkar betur"! Það er eins með okkur... hver og einn finnur sina aðferð en notar sama grunninn.
Jæja vonandi hjálpar þetta e-ð.. ef ekki... bara spyrja meira
kv. Anna Bella
|
|