|
Post by Anna Bella on Oct 5, 2005 15:02:33 GMT -5
Jæja ... senn liður að þeirri vinsælu keppni Er engin hér að undirbúa fyrir þetta mót? ef svo er, hvernig gengur það? Endilega nota síðuna til þess að leita aðstoðar, stuðnings eða létta á sér! Kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by gydae on Dec 9, 2005 19:29:50 GMT -5
Hæ hæ ég er með eina spurningu, hvað er eðlilegt að þyngjast mikið milli móta? ég t.d er alltaf dugleg að æfa og borða rétt þó maður sé ekki á "kött,, matseðli en ég þyngist vel! er ég að massast svona hrikalega eða þarf ég að vera duglegri með brenslu og mataræði off seson ? ?
Kveðja Gyða
|
|
|
Post by Anna Bella on Dec 20, 2005 3:57:54 GMT -5
Hæ Pæ
Best væri að þyngjast ekki meira en 5 - 6 kiló á milli móta, en ég held að algengast sé að þyngjast frá 8 - 10 kg . Passaðu þig samt að fara EKKI yfir 10 kg. Það er ekki ægt að bæta á sig nokkur kg af "hreinum" massa á örfáum mánuðum. Málið er að þegar er verið að undirbúa mót þá gerist tvennt. a) þú borðar færri he og brennir meira en þú ert vön. Þar af leiðandi þegar keppni er afstaðin og þú borðar aftur venjulegt fæði og brennir minna ( og iðulega drekkur minna vatn ) þá hlaðast aukakílóin. Það er nota bene nauðsynlegt að þyngjast e-ð til að geta aukið massann vegna þess að það getur þú ekki ef þú ert á "on season "
Vonandi svara þetta einhverjar spurningar krúttið mitt. Kær kveðja Anna
|
|
|
Post by gydae on Jan 5, 2006 10:23:38 GMT -5
Takk fyrir þetta Bella ég er ekki í slæmum málum þá, en önnur spurning... Er ekki dáldið erfitt að skipuleggja sig ef maður er að kötta og ferðast á sama tíma hvernig er best að fara að ? segjum sem svo að maður fari í eina helgarferð erlendis? eða er bara best að reyna að sleppa öllu slíku? bæjó Gyða www.blog.cental.is/gyda-eyglo
|
|
|
Post by Anna Bella on Jan 6, 2006 15:12:20 GMT -5
Hæ Gyða mín Nei það er ekki erfitt! Eins og þú nefnir réttilega er bara spurning að SKIPULEGGJA sig! Það er líka hægt að njóta þess að fara út að borða úti og þá biður þú um sósulaust og alles sem þú mátt ekki borða! Ég er að fara út núna í þessum mánuði og verð ífjóra daga og samt er ég byrjuð að kötta... það er bara að taka með sér nesti og bros á vör !! JÁ EITT ENN sem er MJÖG MIKILVÆGT! Mundu að taka það fram við ferðafélagann þinn að þú sert að kötta og þú getir ekki tekið þér "frí" frá köttinu... svo hann eða hún fái ekki sjokk þegar á að strunsa beinustu leið á Mc Donalds kveðja Anna Bella
|
|