Post by gunnsa on Jan 15, 2006 17:03:09 GMT -5
Hæ Anna Bella mín, og takk fyrir góð skrif hérna inni á spjallborðinu. Mig langar að spurja þig að nokkrum atriðum, vonandi geturðu hjálpað mér með þau Þannig er mál með vexti að ég stefni á Ice fitness næsta október.
Ég er byrjuð að þjálfa af mikilli hörku, þó með skynsemi, og mataræðið er so far tipp topp, nema á laugardögum en þá er nammidagur. Borða yfirleitt 6x yfir daginn, eða á 2-3 tíma fresti. Byrja daginn á kolvetnum, en sleppi þeim oftast eftir kl 17. Prógrammið mitt fékk ég frá Unnari Karlssyni og það er að mestu til þess að fá þol og nóg af styrk í vöðvana, stækka þá, og minnka fitu %. Ég lyfti semsagt 4x í viku seinnipart/kvöld á mánud, þriðjud, fimtud og föstud, og brenni alla morgna í 30 mín nema sunnudaga, þá er hvíld. Eftir hverja lóðaþjálfun brenni ég 20 mín.
Ég var samt að spá, hvernig get ég skipt tímanum fram að móti? Ætla að taka þetta prógramm til að þjálfa upp styrkinn og þolið og vera nógu dugleg í armbeygjunum og einnig reyna að komast e-h staðar í þrautabraut til að æfa mig. Eftir að ég klára þetta ætla ég að fá annað til að stækka vöðvana meira, og svo 4 mán fyrir mót ætla ég að byrja að ,,cutta" niður. Geturðu nokkuð sagt mér hvað ég ætti að taka langan tíma í að þjálfa upp þolið og styrkinn, og hvað langan tíma í uppbygginguna? Hjálpa mér að skipuleggja þetta betur... Ætla að vera í mælingum á 6-8 vikna fresti allt tímabilið fram að móti.
Ég veit að þetta er naumur tími og ég ætlaði að bíða fram á 2007 eða 2008...en bíða eftir hverju? Það er ekkert víst að ég eigi eftir að standa mig betur þá ef ég hef ekki reynslu. Ég veit þetta krefst fórna og peninga en ég er búin að finna leið til að sinna þessu um leið og skóla og vinnu, búin að skipulegga mig. Ég ætla að standa mig VEL, gefa 110%, labba stolt í burtu, koma svo aftur mótið eftir og standa mig ennþá betur, og enn betur mótið eftir það! ;D
Vonandi geturðu svarað mér sætasta.
Kær kveðja,
Gunnhildur