|
Post by Anna Bella on Jun 11, 2006 18:24:59 GMT -5
Jæja krakkar....
Let the count down begin ! Yep dagur 1 í kötti fyrir HM í september hófst með pompi og prakt í morgun! Vel úthvild og tilbúin í slaginn meir en nokkru sinni fyrr. Búðin komin vel í gang og er ég svo heppinn að vera með framúrskarandi starfsfólk sem mun sjá um búðina að mestu leyti meðan ég gef mér þann tima sem ég þarf til að undirbúa þetta mikilvæga mót. Í fyrsta sinn á minum ferli mun ég geta einbeitt mér fullkomlega að þjálfuninni og matarræðinu og sett þetta allt í fyrsta sæti. Vanalega hefur maður verið að drukkna í vinnu og þurft að æfa á ókristilegum tima og dauðþreyttur á sál og likama. Þannig að þetta verður hrikalega spennandi og vonandi skemmtilegur undirbúningur. Svo megið þið alveg fara að vera duglegri að skrifa hérna krakkar!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Sjáumst hress og kát,
Anna Bella
|
|
|
Post by kolla on Jul 5, 2006 6:33:25 GMT -5
Hæhæ Anna Bella og allar hinar... langt síðan síðast jæja hér er bara engin að skrifa lengur tími til komin að peppa þetta aðeins upp er það ekki annars?? ;D Hvað segiru Anna Bella, hvernig gengur undirbúningurinn fyrir heimsmeistaramótið?? Vona að þér gangi yndislega vel í öllu. Fór á Selfoss um daginn og kíkti í búðina en sá enga Önnsu... væntanlega að æfa á fullu hihi en flott búð hjá þér Hér koma svo nokkrar spurningar.... svona í tilefni að það eru nokkrir mánuðir síðan ég skrifaði síðast... Mér langar nefnilega svo að vita hvernig æfingar þú ert að gera. Hvernig þú skiptir vöðvahópunum og þannig. Ertu að lyfta á hverjum degi eða? Er eitthvað í svona keppnum sem maður ætti að leggja áherslu á meira en eitthvað annað? Hefuru einhvern tíman verið í svona eróbikki eða læturu það alveg eiga sig. Ég byrjaði í dag að undirbúa mig fyrir Fitness á páskum 2007. Kanski svoldið mikill tími en ég þarf að losa mig við eitt kíló á viku til að ná því takmarki og skal það standast. Hvernig æfingaprógrami, þá helst lyftingarprógrami myndir þú mæla með? Búin að kaupa dagbók, liti og fullur ísskápur af hollum mat ;D Er eitthvað sem þú mælir með að ég geri í sambandi við vítamín, (er ekki að taka nein) stundum freyðitöflur bara. Á mjög erfitt með að gleypa töflur. Og eitt að lokum... GANGI ÞÉR ÓTRÚLEGA VEL Í KEPNINNI ÚTI.... við höldum með þér ;D ;D ;D og verum nú duglegar að skrifa kv. Kolla
|
|
|
Post by Anna Bella on Jul 5, 2006 10:09:23 GMT -5
Sæl Kolla mín,
Gaman að heyra í þér og æðislegt að heyra að þú sért að stefna á mót! Undirbúnigurinn gengur framar vonum og er ég mjög bjartsýn yfir þessu öllu. Geðið er gott .... engin meiðsl 7,9,13.... og skurðurinn og vöðvarnir eru nákvæmlega eins og ég vil hafa það. Núnú.. til að svara spurningum þinum þá ætla ég að byrja á að láta þig vita að það er sko ekki svo langur timi fram að páskum....... málið er með þetta sport að það tekur allt svo langan tima.... misjafnlega langur ....en langur. Það sem flestir gefast uppá er að hlutirnir gerast ekki nógu hratt og eru með óraunhæfar kröfur gagnvart sportinu og sjálfan sig. Spurning 2. Þú spyrð hvort það sé e-ð í svona keppnum sem maður á að leggja meira áherslu á og hvort ég fari í eróbikk. NEI ég fer ekki í eróbikk eða pallatíma eða nokkuð svoleiðis af þeirri einföldu ástæðu að það er ekki fyrir mig.... ég er einfari á æfingum og vil gera hlutina eftir minu höfði... það eru örfáir sem að geta verið æfingafélagar mínir vegna þessa. og það sem þú átt að leggja áherslu á vegna mótsins er...... ALLT. vertu alltaf vakandi.... vertu sjálfgagnrýnin og tilbúin að láta gagnrýna þig... það er það sem dómararnir gera.... þannig að þú græðir ekkert á að heyra eingöngu hvað þú ert flott og allt jákvætt... finndu þjálfara (Sif t.d. ) sem er tilbúin að kikja á þig einu sinni í mánuði eða svo og láttu hann gagnrýna og segja þér hvað þú átt að laga ef þú sérð það ekki sjálf.... það þarf mikla þjálfun í að sjá sjálfur það sem þarf að laga. Ég til dæmis þarf að vinna vel í lærunum og brjóstkassanum og legg þvi ofur áherslu á það á meðan ég geri málamyndunar æfingar á hina vöðvahópana. Þjálfun hjá mér er aldrei eins uppbyggt eða neitt þvilikt... það fer allt eftir hvað ég þarf að vinna með. Enn og aftur þarf að þekkja sig vel til að gera þetta þannig og þetta kemur allt einfaldlega með reynslunni... en þó fyrst og fremst með þvi að veita eftirtekt... hrósa sjálfri þér og skamma.... þú þarft að kunna hvort tveggja. Ef þú kannt ekki að vera ánægð með þig þa munu dómararnir ekki sjá þig á sviði.
jæja mín kæra ..... vonandi er þetta e-ð sem þú getur byrjað með.
Gangi þér sem allra best,
kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by gunnsa on Jul 8, 2006 16:50:13 GMT -5
Hæhæ Anna mín. Ég er búin að koma nokkrum sinnum inn í Galenia í von um að sjá þig en nú veit ég afhverju það gerist ekki, hehe;) Ég vona að þér sé að ganga sem allra best í undirbúningnum, þú veist að margir (þar á meðal ég) hugsum til þín og styðjum þig. Ég hlakka til að sjá þig í vonandi þínu besta formi hingað til! Ég er ekkert smá ánægð með minn árangur hingað til, ákvað að byrja á Líkami fyrir lífið prógramminu 3. júní sl. og árangurinn lætur ekki á sér standa. Búin að léttast um 3 kg (það eru 7 kg síðan í mars og ég þarf varla að missa meira), og vöðvamassi búinn að taka stórtækum framförum! Bara á þessum 6 vikum eftir 7 vikna,,hléið" mitt eftir aðgerð og sambandsslit í vor. Vona bara að þetta haldi svona áfram, ég er að æfa í lítilli líkamsræktarstöð í sumar hér í Árnesi (kemst ekki á selfoss), og konurnar sem halda henni uppi eru svo góðar að skilja eftir opið fyrir mig svo ég komist alltaf eftir vinnu. Ég stefni ennþá meira á fitnessið næsta vor núna, ég hef séð hvað ég get gert með réttum æfingum og mataræði og ég er sannfærð um að ég næ þessu með áframhaldandi metnaði og vinnu. Lyfti mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga (brenni í 20 mín á morgnana og eftir æfingar), svo brenni ég í amk 30 mín. miðvikudaga og laugardaga. Frí sunnudaga. Svo hef ég tíma til að bæta mig ennþá meira þangað til 26. ágúst en þá lýkur áskoruninni. Átti í dálitlum erfiðleikum með mataræðið til að byrja með en á undanförnum vikum hefur það allt komið til. Er að notast við eftirfarandi fæðubótaefni: Diet brennvery *friendly* personöflur, drekka myoplex diet 1x- 2x á dag, tek betagen 2x-3x á dag, og svo CLA töflur með máltíðum. Er að taka fjölvítamín, lýsi og spirulina. Ætla svo í Boot camp um leið og skólinn byrjar. En ég var að spá í, er nóg að fá bara prógrömm og smá ráðleggingar með mataræði frá þjálfara? Ég nefnilega held að það væri kannski skynsamlegra fyrir mig að fá mér þjálfara á selfosssvæðinu sem gæti hitt mig oftar til að líta á mig og svoleiðis? Það er svo mikill reytingur með hann Unnar, hann hefur auðvitað mjög mikið að gera sem einkaþjálfari. Er einhver sem þú getur mælt með? Ég spurði Berglindi og hún er á kafi þannig að... Ég veit allavega að ég þarf þjálfara sem getur hitt mig með ákveðnu millibili, mælt mig og annað+ láta mig hafa prógrömm. Er í smá krísu... Gangi þér allavega rosalega vel og vonandi hitti ég á þig...er farin að sakna þess að tala við þig. Kær kveðja, Gunnhildur
|
|
|
Post by Anna Bella on Aug 15, 2006 13:52:17 GMT -5
hæ elskan mín og bara FYRIRGEFÐU hvað ég er léleg í að svara!! Búið að vera vitlaust að gera bæði í vinnu og einkalífi að það ersko nóg um. Mikið rosalega er ég glöð að þú sért komin svona vel á skrið og þá er bara málið að halda áfram......... ekki hætta. En afhverju viltu þjálfara? er það til að pína þig áfram ? eða bara til að fá prógrömm ? eða afhverju? Það er rosalega gott að vera með einkaþjálfara og það þurfa allir að láta sparka í sig með reglulegu millibili.... spurning hvort að Þú fáir útúr bootcamp akkúrat þetta? spark í botninn!!! Þar færðu auðvitaðaðhald í matarræði og mælingum... + brjálaðar æfingar!!!! En svaraðu fyrst og fremst hreinskilnislega AFHVERJU þú vilt þjálfara!!! og svo skaltu vinna útfrá þvi.... hvar verðuru í vetur? jæja sweety... verð vonandi fljótari að svara næst gangi þérvel... haltu áfram að vera svona dugleg og vertu hörð við sjálfa þig....... en ekki ætlast til af þér hið ómögulega knús, þín vinkona Anna Bella
|
|
|
Post by gunnsa on Aug 16, 2006 6:05:22 GMT -5
Ég vil þjálfara út af einmitt sparki í rassinn og prógrömmum því ég treysti mér ekki til að gera þau sjálf. Ég hef samt verið að athuga þetta undanfarið, lyfta með eigin aðstoð og ég held að ég gæti alveg bakkað það upp að búa sjálf til prógrömm. Tek oftast 4 sett, byrja í 12 reps og fækka svo repsunum með meiri þyngdum. Hef verið á það mörgum prógrömmum undanfarin 2 ár að þetta ætti að vera farið að síast inn, haha. Svo varðandi niðurskurðinn myndi mig vanta matarprógramm fyrir niðurskurð sem ég þyrfti að redda. Má maður borða skyr og kotasælu í niðurskurði?
Svo ætla ég bara að skella mér í Boot camp, það mæla allir með því og þetta er hörkuþjálfun:)
Og það væri æðislegt að fá að vita hvar þessir blessuðu búningar eru keyptir, hehe.
Until next time, dúllan mín. Þín vinkona Gunnhildur
|
|
|
Post by Anna Bella on Aug 16, 2006 16:58:00 GMT -5
Já Bootcamp er hrein snilld og gott að fara í til að þjálfa þig upp fyrir hindrunarbrautina Hvað varðar matarræði fyrir niðurskurð og búninga.... þá þekkirðu nú eina konu sem getur upplýst þig þegar að þvi kemur ekki satt? farðu vel með þig stelpa kveðja Anna
|
|
|
Post by gunnsa on Aug 17, 2006 19:27:16 GMT -5
Takk dúlla, svaraði þér inn á ,,hreinsun", meika ekki að skrifa sömu romsuna aftur, haha. Þín vinkona Gunnhildur
|
|
|
Post by badda on Sept 2, 2006 16:59:22 GMT -5
Gangi þér vel Anna Bella, við munum allar fylgjast með þér. Kemurðu til með að setja inn myndir af þér á síðuna þína ? væri gaman að sjá Kveðja Badda
|
|
|
Post by Anna Bella on Sept 6, 2006 6:39:35 GMT -5
Hæ Badda, Takk kærlega fyrir hvatninguna ....... alltaf vitamínsprauta að fá svoleiðis Já vonandi get ég sett inn myndir og mun ég þá tækla hana Helgu mína til að gera það.... en svo er alltaf hægt að fara inná www.fitness.is til þess að sjá myndir þar.....Einar Guðmann er hreinn snillingur bakvið linsuna ;-) Annars er ég bara orðin tilbúin og er þá að biða eftir lokasprettinum ..... hlakka mikið til og er mjög örugg kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by gunnsa on Sept 18, 2006 5:26:57 GMT -5
Gangi þér vel snúllan mín ef ég sé þig ekki fyrir miðvikudag:) Þú ert laaaaaang lang flottust og ég er viss um að þú eigir eftir að standa þig eins og hetja. Sjáumst geggjað hressar eftir heimsmeistaramótið góða, ég og allir trúum á þig:)
Þín vinkona Gunnhildur
E.S: Takk líka yndislega vel fyrir alla hjálpina, það er ómetanlegt að hafa frábæra, vana manneskju eins og þig bakvið byrjanda eins og mig;)
|
|