|
Post by gunnsa on Nov 8, 2006 6:37:12 GMT -5
Eitt orð: Æðislegt. Anna Bella og Kristín stóðu sig eins og hetjur en Anna vann sinn flokk og Kristín lenti í 3ja sæti í sínum. Þar að auki var Anna í 2. sæti over all á Bikarmóti IFBB fitness. Til hamingju snúllurnar mínar Verður endilega að láta í þér heyra hérna Anna mín. Hrönn vaxtarræktar/fitnesskona stal senunni á mótinu en hún stóð sig ótrúlega vel og þetta er án gríns flottasta rútína sem ég hef á ævi minni séð! Ég skemmti mér konunglega í módelfitnessinu, veit hvað ég gerði rétt og hvað ég gerði vitlaust og ætla að taka þessa dýrmætu reynslu með mér á næsta mót í vor og mótin þar á eftir. Ætla að taka topp3 á þetta næst. Vildi bara þakka fyrir allan stuðninginn á mínu fyrsta móti, frá öllum hérna inni og sérstaklega Önnu Bellu, þú ert gullmoli. Endilega komið með það sem ykkur fannst um þetta mót í heildina Kær kveðja, Gunnhildur
|
|