|
Post by kolbrun on Nov 15, 2006 5:28:12 GMT -5
Hæhæ og mikið var gaman að fylgjast með ykkur öllum keppa á síðastliðnum mótum kem alltaf hingað reglulega til að lesa mig til og fylgjast með ;D ég er bara aðeins að forvitnast Anna Bella, hvað varstu gömul þegar þú kepptir í fyrsta sinn í Fitnessinu?? Er eitthvað sem þú tókst strax úr mataræðinu? Ef manneskja er 20 kílóum of þung... hvað helduru að það taki hana langan tíma að koma sér í gott form?...ár? Þegar þú byrjaðir í þessum geira... fórstu eftir einhverjum matseðlum? jæja komið gott.... kv.. Kolbrún
|
|
|
Post by Anna Bella on Dec 8, 2006 13:37:11 GMT -5
Sæl Kolbrún FYRIRGEFÐU... að ég skuli ekki vera búin að svara þér.... en það er búið að vera brjálað að gera hjá mér með búðina auk þess að ég er að opna búð 2 !!! ÞAnnig að ég hef hreinlega ekki gefið mér færi á að kikja á síðuna mina.. skamm skamm En nú ætla ég að reyna að svara þér eins vel og ég get... byrjum á fyrstu spurningunni. Þú spyrð hvað ég var gömul þegar ég keppti í fyrsta sinn... ég var 29 ára og var búin að æfa í 10 mánuði... ég var alls ekki tilbúin til að keppa þegar ég gerði það neda engin grunnur lagður eftir svo stuttan tima... ég lenti æi 21 sæti og það var mjög erfitt andlega að sætta sig við það... en eins og svo margar sem keppa í fyrsta sinn þá var breytingin á mér svo griðarleg að ég var viss um að lenda í efstu 3 sæti og engin gat talið mér trú um annað Manneskja sem er 20 kílóum of þung ætti lágmark að búast við ár til að koma sér í form.... allt styttra en það er að sjálfsögðu bónus... en það er um að gera að vera raunsær... það er margt sem spilar inní... líkamlegt og andlegt ástand... lífsmunstur og sumir eru fljótari en aðrir að missa kilóin... Ég mæli með þvi að taka ekki bæði matarræði og líkamsrækt í einu... heldur að byrja á annaðhvort matarræðinu eða líkamsræktinni og þegar eitt er orðið að sjálfsögðum hlut ... að bæta hinu inní... fólk gefst yfirleitt upp áður en það nær almennilegum árangri vegna þess að það byrjar of geyst og með of miklar væntingar og óraunhæfar ... Aðalmálið er ekki að hugsa " ég ætla að missa 20 kíló" heldur " ég ætla að breyta um líferni til hins betra" þá fara 20 kilóin af Ég hef aldrei farið eftir matseðlum heldur hef ég einfalda reglu... ég borða ekki unna matvöru þegar ég er að kötta eða skera fyrir mót... það og æfingarnar nægja til þess að fitan rennur af mér... hljómar aðeins of einfalt til að vera satt en málið er ... þetta þarf ekki að vera flókið Þér er velkomið að hringja í mig ef þú vilt ræða þetta eitthvað frekar eða ef þér fyndist það þægilegra til að fá svör við þinum spurningum 898-6767 Gangi þér annars allt í haginn kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by kolbrun on Jan 31, 2007 9:09:02 GMT -5
hæ og takk fyrir svörin... langar að spyrja um tvennt í viðbót. Sumir eru að fá sér prótein og haframjöl... hvernig er það, hrista þeir bara prótin og setja þurrt haframjöl út á spyr ég núna eins og einhver ljóska kanski.. hehe myndiru mæla með sundi sem góða brennslu? takk takk ;D gangi þér síðan vel með nýju búðina þína.
|
|
|
Post by Anna Bella on Feb 7, 2007 14:43:40 GMT -5
Hæ Kolla mín... Byrjum á fyrstu spurningunni... það er til margar aðferðir til að borða þetta tvennt saman ... persónulega elda ég hafragrautinn og drekk próteinið með samhliða... ég prófaði að blanda þessu saman en það var ekki að gera sig frir mína bragðlauka Svo eru aðrir sem gera eins og þú nefndir og enn aðrir sem blanda hráefnin saman og setja vatn úti og elda þannig.... um að gera að prófa þig áfram Sund........ sund er ROSA góð brennsla auk þess að styrkja og tóna alla vöðvanna... mæli með þvi eindregið! Hvernig gengur þér annars stelpa? kær kveðja Anna
|
|
|
Post by kolbrun on Feb 8, 2007 6:02:40 GMT -5
Hæ hæ, já ég prófaði eimmit að hræra prótein og haframjöl saman og fannst það hrikalegt saman... ég prófa þína aðferð en mér gengur annars vel, fer að synda 3 í viku 800 m. og lyfti 3 í viku líka og líður bara frábærlega með þetta æfingaplan. Ég ætla að stefna að keppni, en það verður ekki strax. Ég er búin að pæla svo rosalega í þessu og það er erfitt að vera að stefna að keppni þegar maður er 30 kílóum of þung. Þá á maður svoldið langt í land og fellur kanski fljótlega. Núna er markmiðið að láta eitt og eitt kíló fara niður, styrkja mig, synda og láta sjálfri mér líða vel. Hitt kemur svo bara ef það kemur ;D en mér finnst rosalega gaman að fylgjast með þér og öllum hinum fitnessstelpunum og vona að ég geti komið til Akureyrar og horft á ykkur. Einnig er vinkona mín að fara að keppa í fyrsta sinn, hún heitir Helga og það verður gaman að fylgjast með henni. Jæja þetta átti nú ekki að vera svona rosalega langur pistill ég fæ kanski að hringja í þig anna bella mín ef mér gengur áfram svona vel að æfa og fá ráðleggingar.
|
|