Post by gunnsa on May 13, 2007 14:39:53 GMT -5
Hæ Anna mín...mig vantar ráð Ég er búin að vera alveg í essinu mínu að hreinsa mataræðið og æfa á fullu aftur eftir að reyna að taka smá hvíld til að koma öxlinni og bakinu á mér aftur í lag.
Var þar af leiðandi að fá glænýtt og ótrúlega flott og strangt prógramm frá Unnari þjálfara, ekkert smá ánægð með það.
Komst líka inn í liðssveit EAS, bjargar manni alveg að fá smá afslátt af því sem maður þarf að nota.
Þannig er síðan mál með vexti að ónefndur vinur minn er að selja lyf...ólögleg lyf. Ég vil ekki taka svoleiðis, enda væri ég mesti hræsnari í heimi ef ég færi að gera það þar sem að ég er búin að vera mikið á móti svoleiðis. Ég trúi á það að maður geti náð langt með mikilli vinnu þó svo að auðvitað séu alltaf einhverjir á þessu. Það kemur mér ekki við hvað aðrir eru að gera en ég ætla að gera þetta sjálf. Allavega, þessi kunningi minn var að reyna að selja mér Ripped fuel ,,með tvöfalt meira efedríni og virkar ógeðslega vel..."
Ég sagði nei og sagði að ég vildi ekki gera þetta út af þessu og hinu og hann sagði: ,,Æj þú ert að taka þessu of alvarlega...þú munt aldrei ná langt nema þú notir eitthvað". Svo lét hann önnur ófögur orð flakka.
TAKK FYRIR GÓÐAN DAGINN. Þið viljið ekki vita hvað ég sagði við hann en það var ekki fallegt. Fyrir það fyrsta þá er hann ekki mikill vinur að segja svona og í öðru lagi þá vantar mig ráð.
Er þetta íþrótt þar sem að allir sem eru að vinna eru að taka eitthvað nema kannski í módelfitnessinu? Maður veit alveg að sumir eru að gera það...en allir?
Hann leyfði líka 17 ára stelpu sem er að vinna með mér að ,,prufa" ripped fuel því henni langar að komast í ,,form" og hann er búinn að sannfæra hana um eitthvað svona. 17 ára. Líkaminn er ekki búinn að taka út allan þroska og þetta er illa gert.
Nú byrjuðu sumar vinkonur mínar að æfa því að þær sáu árangurinn sem ég náði sjálf fyrir seinasta mót...og ég er að æfa með systur kærastans míns og hún lítur upp til þess að ég viti eitthvað hvað ég er að gera... Og fjölskyldan mín er svo stolt. Mig langar að halda áfram að sanna mig og sýna að maður þarf ekki lyf til að komast í frábært form, en það dregur svo úr manni máttinn að heyra eitthvað svona...,,Þú munt aldrei ná langt ef þú notar aldrei neitt".
Mig vantar aðallega bara hughreystingu og að einhver með viti segi mér að þetta sé hægt. Endilega svarið.
Kær kveðja
Gunnhildur