|
Post by momsa on Sept 7, 2005 6:15:53 GMT -5
Anna Bella,
Mig langaði svo að spyrja þig út í svona bakmeiðsl. Ég er með brjósklos (er reyndar enn í rannsóknum) og það er ekki alveg vitað hvað á að gera við mig.
Mér finnst stundum svo ótrúlega erfitt að rífa mig af stað á æfinu vegna eymsla í bakinu. Þetta kemur fram sem ótrúleg þreyta og verkir niður í fótinn. Á mjög erfitt með að hlaupa lengi og að ganga lengi. Ég er mjög sterk líkamlega sem er örugglega að hjálpa mér í þessu en finnst þetta samt ótrúlega erfitt að geta ekki verið eins aktíf.
Geturðu gefið mér einhver ráð?
|
|
|
Post by hiddaj on Sept 7, 2005 7:32:59 GMT -5
HÆ MOMSA .. vELKOMIN Í HÓPINN GAMAN AÐ FÁ ÞIG ....
|
|
|
Post by momsa on Sept 7, 2005 8:22:07 GMT -5
Takk Hidda! Ég hef rekist á innlegg eftir þig hérna og svo kíkti ég líka stundum á fitness spjallið þó ég hafi aldrei skráð mig þar (roðn). Ótrúlegt hvað það stafar eitthvað mikil hlýja frá þér. Vona að þú náir þér af álagsmeiðslunum. Þú ert algjör hetja!
|
|
|
Post by hiddaj on Sept 7, 2005 11:00:48 GMT -5
Æ RÚSÚSLAN ÞÍN .. TAKK .. ÞETTA TEKST ALVEG MEÐ VILJANUM OG HJÁLP YKKAR ALLR. GOTT AÐ FÁ AÐ PÚSTA ÚT HÉRNA ÞAR SEM E.H SKIJA HVAÐ MAÐUR ER AÐ FARA . .. HVAR ERTU AÐ ÞJÁLFA/ÆFA EF ÉG MÁ SPURJA ...??
|
|
|
Post by Anna Bella on Sept 11, 2005 13:07:55 GMT -5
Sæl Momsa, Fyrirgefðu hvað ég er lengi að svara þér... ég hreinlega tók ekki eftir þér!!! En.. ég ætla nú að byrja með þvi að hrósa þér fyri dugnað og það að þú skulir þrauka "þrátt fyrir allt" Bakmeiðsli eru mjög erfið viðureignar og tala ég nú ekki um Brjósklos! Við skulum alveg hafa það á hreinu að ráðleggingarnar sem ég ætla að gefa þér hér eru mín skoðun en ekki endilega sú rétta og mæli ég með þvi að þú talir við sjúkraþjálfara sem ber virðingu fyrir þinar þarfir og myndi leita með þér þær æfingar sem eru góðar fyrir þig. ENNNNNNNNNNN kona góð... hlaup eiga að mínu mati að fara uppá hillu til að byrja með! Þetta eru og mikil högg fyrir bakið og gerir þér EKKERT gott. Það er náttúrulega mjög slæmt ef að þú hefur dálæti á hlaup en aftur á móti þá er svo margt annað sem þú getur gert og haft vonandi gaman að. Hvar ertu að æfa ef ég má spyrja? og einnig væri mjög gott að vita aldur þinn. þér er frjálst að senda mér tölvupóst viljir þé það frekar! Á meðan verið er að rannsaka þig þá skaltu gera eftirfarandi a) hjólaðu frekar en að ganga... (mundu að hlaup er tabú) b) vertu MJÖG dugleg að taka kviðæfingar ... oft eru bakmeiðs afleiðing af þvi að kviðvöðvarnir eru ekki eins sterkir og þeir ættu að vera! Þannig að hlúðu vel að þeim! Mjög gott fyrir bakveika ( og alla reyndar ) að gera kviðæfingar á æfingabolta. Það bæði hlífir bakinu við fettum og svo þjálfar þú lika vissa "jafnvægisvöðva". gerðu engar æfingar sem eru þungar uppfyrir höfuð og hnébeygjur með þyngd mynd ég alveg sleppa! heldur gera frekar fótapressu, réttur og kreppur. Líkaminn lætur þig vita strax hvað hann þolir og hvað ekki. Þannig að ekki gera þau mistök að "láta þig hafa það" heldur finndu einfaldlega aðra leið! Nóg er af þeim Vonandi hjálpar þetta þér e-ð Momsa en fyrir alla muni .. ekki láta deigan síga og ef ég get gert meira fyrir þig þá er ég hér til þess að aðstoða á allan þann hátt sem ég get. kær kveðja Anna Bella
|
|
|
Post by Helga Audunsdottir on Sept 12, 2005 14:28:03 GMT -5
Sæl momsa, ég var hlaupari þangað til að bakið gaf sig endalega, sjálfsagt hjálpaði ég vel til því ég hlustaði ekki á líkaman. Í dag geng ég ef ég er slæm í baki og tek stutt skref, veit þetta er ekki skemmtilegt þegar maður er vanur að fara létt yfir, en fyrir mig virkar þetta til að halda mér í þjálfun. Svo stunda ég allar æfingar sem ég þoli en reyni að fara aldrei yfir ákveðið verkjastig. Anna Bella skammaði mig fyrst til að byrja með. en með þjálfun jókst getan. en endilega reyndu að teygja á bakinu, það er að hanga að virkar vel á brjósklos. Ég greindist fyrst með brjósklos en síðan kom í ljós að ég var með slitgigt í hryggnum og að byggja upp maga og bak vöðva er það besta sem þú gerir. Vonandi geturðu nýtt þér eitthvað af þessari ræðu minni kv. Helga ps. ef þú vilt máttu alveg hafa samband við mig í gegnum email
|
|
|
Post by Anna Bella on Sept 12, 2005 14:41:41 GMT -5
Snilldarinnlegg hjá þér stelpa!!!!!!!!!
kveðja , þín vinkona
|
|
|
Post by momsa on Sept 19, 2005 6:24:13 GMT -5
Hæ stelpur! So sorry hvað ég svara seint og takk æðislega fyrir innleggin ykkar. Ég er s.s 27 ára og hef verið að æfa hjá ISF. Læknarnir hafa ekki enn ákveðið hvað á að gera við mig en mér skilst að ég sé með brjósklos. Ég fæ alveg rosalega slæma verki stundum en yfirleitt er ég bara frekar slæm alltaf á kvöldin og yfirleitt á morgnanna. Þá get ég gengið en haltra oft. Reyni samt að draga mig fram úr rúminu til að fara í ræktina kl. 6 (það er eini tíminn sem ég kemst) og það tekst stundum, fór amk í morgun, jei!! þá tek ég yfirleitt brennslu í 40 mín eða lyfti. Það hefur samt frekar lítið farið fyrir því undanfarið. En ég hef undanfarna mánuði verið að lyfta 2 í viku og tekið hvern vöðvahóp einu sinni, 2-3 æfingar og 12 rep. Svo hef ég brennt 3 sinnum í 40 mín. Allt er gert á fastandi maga. það sem mér finnst erfiðast við þetta er getuleysið, þ.e að geta ekki gert allt sem ég er vön. fyrir utan að eiga erfiðara með að sjá um litla strákinn minn. Mér þykir mjög gott og gaman að æfa og það er mér eiginlega lífs nauðsynlegt. Þegar ég get það ekki fyrir þreytu og verkjum fyllist maður svo ótrúlega miklu vonleysi eitthvað fyrir utan hvað mér finnst miklu erfiðara að halda mataræðinu hreinu þegar svona stendur á. Takk fyrir svörin ykkar og fyrir að komast í gegnum þessa langloku. momsa
|
|