Post by momsa on Sept 7, 2005 6:06:47 GMT -5
Hæ allar!
Ég er ný hérna en s.s alls ekki ný í þessum heimi. Hef kennt þolfimi og spinning í fjölda ára ásamt því að þjálfa af og til. Ég held að ég hafi gengið í gegnum flest allt í þessum heimi, fyrir utan það að standa á sviði. Ég hef viðað að mér mjög mikilli þekkingu bæði á þjálfun og mataræði og tel mig geta leiðbeint öðrum mjög vel.
Þá kemur vandamálið....sem er ég sjálf!! Ég hef einu sinni stefnt á keppni en hætti við því ég var alls ekki tilbúin. Náði þó að byggja upp góðan massa ásamt því að skera niður á sama tíma. Hef aldrei verið í eins góðu formi. Gallinn er hins vegar sá að ég tók það alveg ofboðslega nærri mér að þyngjast aftur og er bara gjörsamlega með það á heilanum. (ekki eðlilegt ég veit). Mig langar svo að koma mér aftur á sporið en virðist alltaf vera eitthvað að misstíga mig. Þegar ég stefndi á keppni sagði ég öllum það svo ég hafði alltaf góða og gilda ástæðu fyrir að borða ekki drasl nema jafnvel á nammidag. Núna skilur fólk ekki alveg að maður sé að streða við þetta og þrýstingurinn er alveg ótrúlegur. Ég er líka alltaf svo hrædd um að vera að borða of lítið, of mikið, æfa of lítið, of mikið osvfr. Ótrúlega óörugg.
Jæja, þetta er orðin alveg rosaleg langloka. Mig langaði bara að heyra í ykkur og kanna hvort þið lendið aldrei í þessu.
Mig langar líka að henda inn einum degi hjá mér sem er alveg týpískur dagur svona 4-5 sinnum í viku.
8.00 40 gr haframjöl í vatni og 100 gr skyr.is - sykurlaust
10.00 carb sense próteinbar
12.30 kjúklingur og grænmeti steikt á pönnu + og tsk sýrður rjómi og salsasósa
15.00 skyr.is og ávöxtur
18.00 kjúklingur/fiskur og grænmeti
ps. ég er yfirleitt að borða umþ 1500-1700 kal á dag.
Þetta lítur alveg ágætlega út...en ég er samt eitthvað svo óörugg með þetta og finnst hlutirnir alls ekki vera að ganga upp.
úff...ef þið náðuð svona langt takk fyrir að lesa
momsan